Golf

Gunn­laugur Árni í sam­starf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni hefur átt góðu gengi að fagna í háskólagolfinu undanfarin tvö ár með liði LSU.
Gunnlaugur Árni hefur átt góðu gengi að fagna í háskólagolfinu undanfarin tvö ár með liði LSU. Mynd: Nike

Ís­lenski kylfingurinn Gunn­laugur Árni Sveins­son er einn af fjörutíu íþrótta­mönnum hjá LSU háskólanum sem hafa tekið höndum saman með íþrótta­vöru­fram­leiðandanum Nike.

LSU greinir frá þessu í fréttatilkynningu á vef sínum en um er að ræða Blue Ribbon Elite NIL verkefnið hjá Nike sem mun hjálpa íþróttafólkinu að öðlast mikilvæga reynslu og vera fulltrúi þessa heimsfræga vörumerkis.

Gunnlaugur Árni er lykilmaður í golfliði LSU háskólans og hefur náð frábærum árangri á sínum fyrstu tveimur árum í háskólagolfinu.

Þá skrifaði hann söguna fyrr á árinu með því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn til þess að öðlast þátttökurétt og spila á U.S. Open risamótinu í karlaflokki.

„Að fá þetta tækifæri svona ungur, með allan feril minn framundan, hefur mikla þýðingu fyrir mig,“ segir Gunnlaugur Árni. „Það að vera fulltrúi Nike þýðir að vera á meðal þeirra bestu og það reyni ég að gera á hverjum einasta degi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×