Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Smári Jökull Jónsson skrifar 8. september 2026 07:30 Rúmlega helmingur íslenskra nemenda nær grunnfærni í lesskilningi samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar. Vísir/Anton Brink Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum heldur áfram að versna samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar. Bein útsending verður á Vísi frá blaðamannafundi barna- og menntamálaráðuneytisins klukkan 11 þar sem farið verður yfir niðurstöðurnar.
Niðurstöðurnar koma fram í skýrslu PISA sem birt var í morgun en um er að ræða könnun sem lögð var fyrir nemendur 10. bekkjar í mars og apríl 2025. Könnunin var lögð fyrir um 760 þúsund nemendur í 91 landi en hér á landi tóku 3.974 nemendur í 137 skólum þátt eða um 92 prósent allra þáverandi 15 ára nemenda. Tæplega helmingur nær ekki grunnfærni í lesskilningi Samkvæmt niðurstöðunum ná 44 prósent nemenda ekki grunnfærni í lesskilningi. Það er umtalsvert hærra hlutfall en meðaltal OECD ríkja þar sem sambærilegt hlutfall er 31 prósent. Námsmatskvarði PISA er í sex hæfniþrepum og ef nemendur ná ekki að standast annað þrep teljast þeir ekki hafa náð grunnfærni. Kínverskir nemendur standa sig best allra í lesskilningi en þar ná 93 prósent nemenda grunnfærni en aðeins 4 prósent í Rúanda þar sem árangurinn er verstur. Hlutfall nemenda undir hæfniþrepi 2 Ísland Meðaltal OECD Í bæði stærðfræðilæsi og náttúruvísindum ná 38 prósent íslenskra nemenda ekki grunnfærni en sambærilegt hlutfall innan OECD er 26 prósent í náttúruvísindum og 35 prósent í stærðfræði. Lítið um afburðanemendur og tölurnar áfram á niðurleið Þegar hinn endi mælistikunnar er skoðaður kemur í ljós að hlutfall afburðanemenda er umtalsvert lægra á Íslandi en í samanburðarhópi. Aðeins 3 prósent (OECD-meðaltal 7 prósent) nemenda hér á landi ná afburðaárangri í náttúruvísindum, 4 prósent (OECD meðaltal 8 prósent) í stærðfræðilæsi og 2 prósent (OECD meðaltal 6 prósent) í lesskilningi. Nemendur sem ná fimmta eða sjötta hæfniþrepi teljast hafa afburðahæfni. Hlutfall afburðanemenda er lægra hér á landi en að meðaltali í þeim löndum sem taka þátt í PISA-könnuninni.Vísir/Anton Brink Þá sýna niðurstöðurnar að árangur í öllum greinunum þremur er verri en síðast þegar könnunin var lögð fyrir árið 2022. Þá var niðurstaðan sú slakasta frá upphafi og heldur þróunin því áfram á svipuðum nótum þó árangurinn fari ekki eins bratt niður og þá. Þróunin almennt í OECD-ríkjum er svipuð og hér á landi. Meðaltal allra þriggja námsgreinanna hefur lækkað úr rúmlega 490 stigum árið 2018 í lesskilningi og stærðfræði og í tæplega 470 stig nú. Lækkunin er minni í náttúruvísindum en samt greinileg. Stærðfræði Lesskilningur Náttúruvísindi Ísland Meðaltal OECD Engu að síður falla íslenskir nemendur niður um fimm sæti í náttúruvísindum, þrjú sæti í lesskilningi og þrjú í stærðfræði. Þegar árangur kynjanna er skoðaður sést að íslenskir strákar standa sig betur en stelpurnar í stærðfræði en því er öfugt farið hvað varðar lesskilninginn. Í lesskilningi er meðaltal íslenskra stráka 408 stig og stelpnanna 446 stig. Í náttúruvísindum fá strákarnir 441 stig að meðaltali en stelpurnar 443 og í stærðfræði er meðaltal strákanna 456 stig en stelpnanna 444. Meiri skjátími en minna í frítíma Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra undirritaði nýlega reglugerð um símanotkun í grunnskólum en samkvæmt henni mega börn ekki hafa síma og snjalltæki á sér á skólatíma. Áfram má þó nota slík tæki í eigu skólanna við vissar aðstæður. Notkun tækja var könnuð í PISA-könnuninni. Þar kemur fram að nemendur á Íslandi nota tækjabúnað að meðaltali í 3,2 klukkustundir í skólanum á hverjum degi í námslegum tilgangi samanborið við 1,7 klukkustundir sem er samanlagt meðaltal annarra landa. Ísland Meðaltal OECD Hlutfallið snýst hins vegar við þegar spurt er um notkun snjalltækja í frístundum í skólanum. Þar er meðaltalið 0,6 klukkustund hjá íslenskum nemendum en 1,1 klukkustund að meðaltali hjá jafnöldrum erlendis. Þá telur tæplega fjórðungur íslenskra nemenda að samnemendur þeirra truflist af notkun snjalltækja í kennslustundum náttúruvísinda samanborið við 28 prósent að meðaltali í OECD. Hlutfall nemenda sem truflast af notkun tækja í kennslustund Ísland Meðaltal OECD Í skýrslu PISA kemur fram að nemendur, sem verða fyrir truflun vegna notkunar snjalltækja, ná að meðaltali lakari árangri í náttúruvísindum en þeir sem sögðust ekki verða fyrir truflun. Áhugasamari kennarar hér á landi Þegar tölur um tíðni eineltis er skoðaðar má sjá að þær eru lægri hér á landi en í öðrum OECD-ríkjum. 15 prósent íslenskra nemenda segjast verða fyrir einhvers konar einelti nokkrum sinnum í mánuði en meðaltalið í OECD-ríkjunum er 20 prósent. Einelti er þó útbreiddara hér á landi en síðast þegar könnunin var gerð árið 2022 og er sú þróun svipuð og að meðaltali annars staðar. Þá segja 83 prósent íslenskra nemenda að kennarinn þeirra sýni námi hvers og eins nemanda áhuga samanborið við 69 prósent að meðaltali í OECD-ríkjunum og færri nemendur hér á landi upplifa að þeir geti ekki lært í tímum sökum óláta eða að ólæti trufli kennslu. Minni vandræði vegna skorts á kennurum Auk nemenda svara skólastjórar og kennarar líka spurningum í könnun PISA. Í þeim hluta kemur meðal annars fram að 25 prósent nemenda stunduðu nám í skólum hér á landi þar sem skólastjórar upplifðu að kennsla takmarkaðist vegna skorts á kennurum en sambærilegt meðaltal annarra landa var 39 prósent. Þó jókst þetta hlutfall hér á landi úr 11 prósentum árið 2022 og hefur því meira en tvöfaldast á þremur árum. Sami fjöldi skólastjórnenda, í skólum þar sem 25% nemenda stunda nám, taldi skort á viðeigandi námsgögnum og tækjabúnaði hafa takmarkað skólastarfið og 29 prósent þeirra töldu innviði skólahúsnæðis hafa hamlandi áhrif samanborið við 16 prósent síðast þegar könnunin var gerð. Töluverð umræða hefur einmitt verið hér á landi um skort á námsefni við hæfi og að ráðast þurfi í átak í gerð nýs námsefnis á íslensku. Beint streymi verður á Vísi frá blaðamannafundi barna- og menntamálaráðuneytisins í Safnahúsi klukkan 11:00 þar sem farið verður yfir niðurstöður PISA-kannanarinnar.
Grunnskólar Börn og uppeldi Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira