Innlent

Raf­magns­laust í Reykja­vík og Mos­fells­bæ

Eiður Þór Árnason skrifar
Frá Grafarholti í Reykjavík þar sem tilkynnt hefur verið um rafmagnsleysi.
Frá Grafarholti í Reykjavík þar sem tilkynnt hefur verið um rafmagnsleysi. Vísir/Vilhelm

Rafmagnslaust er að hluta eða öllu leyti í Úlfársársal og Grafarvogi í Reykjavík auk Mosfellsbæjar. Þetta staðfesta Veitur sem vinna að því að átta sig á umfangi truflananna. Fréttastofu hafa einnig borist ábendingar um rafmagnstruflanir í Grafarholti. 

Rafmagnstruflunin getur haft áhrif á afhendingu hitaveituvatns í efri byggðum þar sem vatni er dælt upp hlíðar. Fréttastofu hafa borist ábendingar um truflanir á netsambandi um farsímakerfi. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×