Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 2. september 2026 10:51 Ársæll Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, ræddi við Ísland í dag. Skjáskot „Mín upplifun af foreldrum nú til dags er sú að þeir eru rosalega hræddir við að vera leiðinlegir. Ég man eftir þessum leiðinlegu foreldrum úr minni æsku sem voru bara góðir foreldrar sem settu mörk og voru að reyna að leiðbeina börnunum sínum,“ segir Ársæll Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Ársæll hefur í gegnum tíðina unnið mikið með börnum og samhliða prófessorastarfinu heldur hann námskeið í uppeldisráðum og er sömuleiðis að skrifa bók. Hann kennir foreldrum meðal annars að vera leiðinlegir, sem hann segir gríðarlega mikilvægan part af uppeldishlutverkinu. „Leiðin að því að vera skemmtilegt foreldri er að vera tilbúið að vera leiðinlegt þegar það þarf á því að halda,“ segir Ársæll og bætir við að þegar hann var fyrst að verða foreldri hafi hann séð fyrir sér stanslaust valhopp og gleði. „Svo komst ég fljótlega að því að það orð sem ég notaði mest var nei og orðið sem ég notaði næstmest var ekki. Það voru ákveðin vonbrigði en ég held að þetta sé samt mjög lýsandi fyrir það sem ég er að reyna að segja. Þegar maður er að ala upp ung börn þarf að hjálpa þeim að finna rammann á því hvað má. Stundum gera þau hluti sem eru algjörlega óviðeigandi eins og að meiða yngri systkini. Þá þarf að senda skýr skilaboð sem þau skilja. Ég heyri oft um yngri foreldra sem reyna að útskýra rosa mikið djúpsálarlegar greiningar á því af hverju þú átt ekki að gera þetta en barnið skilur ekkert sem þú ert að segja, þetta verður bara eitthvað orðasalat fyrir því.“ Hann segir því einfaldar og skýrar skipanir þær mikilvægustu og að víkja ekki frá þeim grunnreglum sem barninu eru settar. Ársæll ræddi við Ísland í dag en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan: Ársæll segir jafnframt að það sé einfaldlega lækkun í tign að vera vinur barnanna sinna. „Foreldrar sem eru vinir barna sinna eru fyrst og fremst að deila alltof miklu úr sínu lífi, öllum sínum raunum og veseni, og mér finnst það ekki við hæfi þegar maður er foreldri. Þá finnst mér þetta vera að slappast, tökin verða linari vegna þess að vinur er allt annað dæmi en foreldri. Það er stórkostlegt að vera foreldri.“
Ísland í dag Börn og uppeldi Háskólar Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira