Metfjöldi kvartana Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 16:42 Kristín Benediktsdóttir er Umboðsmaður Alþingis. Gunnar Sverrisson Metfjöldi kvartana barst umboðsmanni Alþingis árið 2025 og fjölgaði þeim um 12,5 prósent á milli ára. Það stefnir allt í að annað met verði sett á þessu ári.
Alls bárust umboðsmanni Alþingis 596 kvartanir árið 2025 en árið 2024 voru þær 530. Um mitt árið 2026 höfðu borist 416 kvartanir á meðan 282 höfðu borist á sama tíma árið 2025. Þá fór umboðsmaður í fimmtán frumkvæðisathuganir og fimm heimsóknir þar sem aðstæður frelsissviptra eru skoðaðar. Þetta kemur fram í ársskýrslu umboðsmanns Alþingis. Af þeim 507 kvörtunum sem voru afgreiddar á árinu hlutu 23,1 prósent þeirra leiðréttingu eða skýringu stjórnvalda og voru þau síðan felld niður. Það er sambærilegt við síðustu ár en hins vegar fjölgaði kvörtunum sem ekki var hægt að taka til athugunar. Helmingi kvartana var lokið innan mánaðar. Algengustu umkvörtunarefnin voru tafir, skattar og gjöld, erlendir ríkisborgarar, almannatryggingar, opinberir starfsmenn, menntamál og lögreglu- og sakamál. Fimm heimsóknir Umboðsmaður fór í fimm heimsóknir til að fylgjast með aðstæðum þeirra sem eru frelsissviptir. Árið 2025 var farið í fangelsið á Hólmsheiði, fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum, geðdeild Landspítalans á Kleppi og tvisvar á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Þá var gefin út skýrsla um úrræði neyðarvistunar Stuðla í fangageymslu lögreglu á Flatahrauni. Þar voru gerðar alvarlegar athugasemdir við vistun barna í fangaklefunum. Sömuleiðis var útbúin skýrsla vegna eftirlitsheimsókna í fangageymslur lögreglunnar á Vesturlandi. Þar voru einnig gerðar athugasemdir við ýmis atriði sem þörfnuðust úrbóta. Nokkrar skýrslur eru væntanlegar á þessu ári, meðal annars úr heimsókn umboðsmanns í lögreglustöðina á Hverfisgötu, í fangelsið Hólmsheiði og af geðdeild á Kleppi.
Umboðsmaður Alþingis Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira