Sport

Emin sigraði með rot­höggi og er enn taplaus

Andri Broddason skrifar
Emin Kadri Eminsson er enn taplaus á sínum atvinnumannaferli eftir fimm bardaga.
Emin Kadri Eminsson er enn taplaus á sínum atvinnumannaferli eftir fimm bardaga.

Emin Kadri Eminsson barðist í gær í sínum fimmta atvinnumannabardaga. Hann vann hann með rothöggi og er búinn að vinna alla sína atvinnubardaga.

Emin Kadri Eminsson barðist í gær við Nikita Stelmakh sem er rússneskur bardagakappi sem æfir í Finnlandi. Bardaginn fór fram í Finnlandi og var Stelmakh því hálfgerður heimamaður. Stelmakh var aðeins búinn með einn atvinnumannabardaga áður en hann mætti Emin í gær og tapaði honum.

Bardaginn var æsispennandi en í fimmtu lotu náði Emin Kadri að rota Nikitah Stelmakh og vann bardagann. Þetta var fimmti atvinnubardaginn sem Emin Kadri tekur þátt í og er hann taplaus á atvinnumannaferlinum sínum 5-0.

Emin Kadri er hægt og rólega búinn að vera að vaxa í boxheiminum og ætti nú að geta fengið stærri bardaga eftir að hafa unnið fimm þeirra taplaust. Hann er búinn að vera duglegur að berjast í ár en þetta var þriðji bardaginn hans árið 2026. Hann barðist einnig í mars og í maí á þessu ári.

Stefnan hjá Emin er sett á heimsmeistaratitilinn í hnefaleikum og er hann hægt og rólega að koma sér á þann stað til að geta barist um titilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×