Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar 27. ágúst 2026 14:21 Svona spurning á ekki við í lýðræðisríki. Samt er spurt á Íslandi. Í bæklingi frá Landskjörstjórn vegna atkvæðagreiðslunnar 29. ágúst er tekið sérstaklega fram að ríkisstjórnin hafi „boðað að ætlunin sé að fylgja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.“ Fyrir þessu er aðeins ein ástæða: Vilji 67% kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá 20. október 2012 er enn hafður að engu. Það einsdæmi hefur grafið svo undan lýðræðinu í landinu að nú þarf að taka fram sérstaklega að úrslit kosninga verði virt. Alþingi hefur átt frumkvæði að fimm þjóðaratkvæðagreiðslum og alltaf farið að úrslitunum — nema þeirrar einu sem ég var að nefna. Þjóðaratkvæðagreiðsla sem Alþingi boðar til að eigin frumkvæði er að formi til ávallt ráðgefandi en að inntaki pólitískt og siðferðilega bindandi. Sá skilningur lá ljós fyrir þegar fyrstu lög um þjóðaratkvæða–greiðslur voru samþykkt á Alþingi 2010 með miklum meiri hluta og mótatkvæðalaust. Það er sá skilningur sem lýðræðisríki grundvallast á: Allt ríkisvald stafar frá þjóðinni. Þjóðin er stjórnarskrárgjafinn. Í hugum kjósenda er heldur enginn vafi í þessu efni. Þegar Alþingi boðar þá til þjóðaratkvæðagreiðslu ætlast þeir til að farið verði að settum leikreglum og úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Samt mega kjósendur sitja undir dylgjum stjórnmálamanna um að þjóðaratkvæða–greiðslan 29. ágúst sé bara „skoðanakönnun,“ að það séu nú þingmenn sem ráði þessu. Ef til vill stíga einnig fram að þessu sinni „umboðsmenn ógreiddra atkvæða.“ Sjáum til. Þegar breska þingið boðað til ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit var það að undirlagi David Camerons, sem vildi með því gera út um deilumál í eigin flokki og koma Brexit út úr heiminum. Mjög illa var staðið að atkvæðagreiðslunni, gífurlegt upplýsinga–fár, og vopnin snerust í höndum Camerons. Samt var farið að lýðræðislegum leikreglum. Yfirgnæfandi meiri hluti breska þingsins var á móti úrsögn úr ESB og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Brexit, þar sem 52% greiddu atkvæði með útgöngu. Engu að síður staðfesti þingið fram kominn vilja kjósenda. Þótt þjóðaratkvæðagreiðslan um Brexit væri ráðgefandi kom aldrei til greina annað en að þingið virti úrslitin. Formsatriði víkja ekki til hliðar lýðræðislegum grundvallarreglum. Af þessu þurfa íslenskir stjórnmálamenn að læra og bæta ráð sitt. Höfundur er í stjórn Stjórnarskrárfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur Hjartarson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar