„Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 20:59 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar voru í beinni útsendingu í kvöldfréttum og ræddu uppsagnir hjá borginni. SÝN Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá meiri umræðu í borgarstjórn um ákvörðun dagsins um að segja upp tugum starfsmanna borgarinnar og að með skipulagsbreytingum sé þjónusta á leið út úr hverfum borgarinnar. Borgarstjóri segir að við breytingarnar verði ekki þjónusturof og að börn muni fá þjónustu óháð því hvar þau búa. „
Vissulega var þetta erfiður dagur og það er alltaf þungt að taka svona erfiðar ákvarðanir en við erum að umbylta stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, með það að markmiði að bæta þjónustuna við börn og fjölskyldur í Reykjavík,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri en hún og Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, mættust í kvöldfréttum Sýnar. Borgarráð samþykkti í dag skipulagsbreytingarnar á aukafundi borgarráðs en þær leiða til uppsagnar 86 starfsmanna borgarinnar, þar sem 32 munu fá boð um ný eða breytt störf en 54 munu ekki fá áframhaldandi starf. Tillaga borgarstjórnar var samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar. Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir aðgerðina hafa komið upp með flýti, boðað hafi verið til fundar með stuttum fyrirvara og strax farið af stað. „Ég hefði viljað fá meiri umræðu í borgarstjórn um þetta mál. Þetta er stefnubreyting hjá borginni. Þarna erum við að af 86 stöðum sem hafa verið úti í hverfunum og þekkja hverfin og það er mjög erfitt að fá það til baka. Þetta eru sérfræðingar sem eru búnir að vera lengi í hverfunum og þekkja jafnvel börnin,“ segir hann. Hundruð íbúa sæki hverfismiðstöðvarnar og þjónustunotendurnir séu oft í viðkvæmri stöðu. Nú sé þjónustan að færast úr hverfum borgarinnar. Hildur segist ósammála því að þjónustan sé að færast úr hverfunum. „Við erum áfram að þjónusta inni í hverfunum. Við erum ekki að skerða þjónustu og það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar. Við erum að minnka yfirbygginguna og draga úr þessu stjórnendalagi en áfram verða viðtöl veitt inni í hverfunum,“ segir hún. Gamla fyrirkomulagið hafi byggt á fjórum þjónustumiðstöðvum þar sem börn hafi fengið mismunandi þjónustu eftir því í hvaða borgarhluta þau búa, að sögn Hildar. „Með breytingunni tryggjum við að börn fái rétta þjónustu á réttum tíma óháð því hvar þau búa,“ segir Hildur. Hefði verið „ómannúðlegt“ að ræða málið í opinberri málstofu Hefði málið fengið umræður í borgarstjórn hefði það „þroskast og þróast aðeins þannig að tillögurnar hefðu jafnvel verið betri,“ segir Pétur. „Í dag þegar við erum að sjá tillögurnar vitum við í rauninni ekki nákvæmlega hvaða stöðugildi eru að fara út, við vitum ekki hvaða fólki er verið að segja upp. Þannig vitum við ekki, þegar við leggjum niður þessar þjónustumiðstöðvar, hvert fólkið leitar, hvar sest fólk niður með sálfræðingi, hvar fær það aðstoð?“ spyr hann. Hildur segist jafnframt ósammála Pétri hvað varðar að þetta hefði átt að ræða í borgarstjórn en það hefði verið ómannúðlegt. „Ef við hefðum farið inn í borgarstjórnarsalinn, sem er þessi opinbera málstofa okkar borgarfulltrúa, og rætt hvort við ættum að segja upp þessum 86 starfsmönnum eða ekki. Mér finnst það ómannúðlegt. Við þurfum að gera þetta af virðingu við starfsfólk.“
Reykjavík Vinnumarkaður Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira