Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2026 14:46 Þorlákur Árnason er ófeiminn við að feta nýjar slóðir. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Eftir að hafa meðal annars starfað í Hong Kong, Portúgal og Vestmannaeyjum hefur Þorlákur Árnason verið ráðinn þjálfari eins allra besta kvennaliðs Sádi-Arabíu í fótbolta.
Þorlákur var á föstudaginn kynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs Al Ahli en liðið hefur endað í næstefsta sæti sádiarabísku úrvalsdeildarinnar síðustu þrjár leiktíðir í röð. Hann tekur við liðinu af hinni jórdönsku Manar Freij. Þorlákur verður þar með eini Íslendingurinn í deildinni en Sara Björk Gunnarsdóttir lék þar með Al Qadsiah í tvö ár áður en hún fluttist heim í Hauka í sumar. Samningur Þorláks við Al Ahli er til eins árs en á heimasíðu félagsins er tekið fram að hann sé með glæsilega ferilskrá og hæstu þjálfaragráðu UEFA. Þorlákur var síðast þjálfari karlaliðs ÍBV og náði þar frábærum árangri en hætti óvænt undir lok síðasta árs, ósáttur við að félagið skyldi ráða fyrirliða Eyjaliðsins, Alex Frey Hilmarsson, sem framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar. Áður var Þorlákur þjálfari kvennaliðs Damaiense í Portúgal og þá hefur hann til að mynda gert kvennalið Stjörnunnar að Íslandsmeistara árin 2011 og 2013 auk þess að starfa sem yfirmaður knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong eftir að hafa verið yfirmaður hæfileikamótunar hjá KSÍ. Fyrsti leikur Al Ahli undir stjórn Þorláks verður í sádiarabíska ofurbikarnum gegn meisturum Al Nassr 1. september. Ný leiktíð í sádiarabísku úrvalsdeildinni hefst svo með leik við Al Taraji 11. september.
Sádiarabíski boltinn Fótbolti Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira