Innlent

Mal­bika Vestur­lands­veg og stýra um­ferð á meðan

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Vesturlandsvegur verður þrengdur og umferð fer um eina akrein á nokkrum köflum vegna malbikunarframkvæmda í kvöld og í nótt.
Vesturlandsvegur verður þrengdur og umferð fer um eina akrein á nokkrum köflum vegna malbikunarframkvæmda í kvöld og í nótt. Vísir/Vilhelm

Í kvöld, sunnudaginn 23. ágúst, og aðfaranótt mánudagsins 24. ágúst stendur til að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi, meðal annars yfir Leirvogsá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00. Einhverjar tafir geta orðið á umferð meðan á þeim stendur en henni verður stýrt í gegnum vinnusvæði.

Framkvæmdir fari fram á þremur stöðum á Vesturlandsvegi. Í norðurátt frá Korpúlfsstaðarvegi standi framkvæmdir yfir frá klukkan 20 til 23 og þrengt verði í eina akrein fram hjá vinnusvæðinu. 

Á Vesturlandsvegi í norðurátt frá Skarhólabraut munu framkvæmdir standa yfir frá 21 til 01:30 og verður umferð einnig þrengd í eina akrein fram hjá því vinnusvæði.

Malbikað verður á Vesturlandsvegi yfir Leirvogsá og mun umferð verða stýrt í gegnum vinnusvæðið og standa framkvæmdir frá 22:30 í kvöld fram til klukkan 07:00 í fyrramálið.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin séu þröng og menn og tæki séu við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×