Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Freyja Þórisdóttir skrifar 22. ágúst 2026 20:11 Eitt útkallið var í kjölfar þess að aðstoðar gæslunnar var óskað vegna einstaklings sem veiktist um borð í skemmtiferðaskipi norður af landinu. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Vísir/aðsend Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis.
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við blaðamann Vísis. Hann greinir frá því að eitt útkallið hafi verið vegna einstaklings sem þurfti að sækja af skemmtiferðaskipi og flytja undir læknishendur. Sóttur djúpt út á haf „Flugdeildin er búin að sinna fjórum útköllum það sem af er degi og það er auðvitað nokkuð óvanalegt þó að það komi auðvitað fyrir í einhver skipti á hverju einasta ári að svo mörg útköll séu á einum og sama deginum,“ segir Ásgeir. Fyrsta útkallið hafi borist í nótt þegar haft var samband við gæsluna frá skemmtiferðaskipi sem var statt við Jan Mayen, norska eyju í Norður-Íshafi. „Þar var veikur farþegi um borð og skipstjórinn var þá beðinn um að sigla nær Íslandi, inn í dragi þyrlnanna og að þyrlurnar myndu fara af stað þegar skipið væri komið nógu nálægt landi,“ útskýrir Ásgeir og bætir við að svo hafi verið lagt af stað þangað norður. Á sama tíma hafi gæslunni borist sjúkraútkall vegna veikinda í Flatey á Breiðafirði, þannig að hin vaktin hafi sinnt því útkalli. Áður en komið hafi verið að skemmtiferðaskipinu hafi enn eitt útkallið borist en það var vegna veikinda um borð í íslensku fiskiskipi. TF-GNÁ og TF-GRÓ hafi báðar verið á flugi samtímis vegna útkallanna. „Þá var ákveðið að forgangsraða og byrja þar. Þannig að fyrst var byrjað á að sækja þennan veika skipverja í þessu fyrsta skipi sem var norður af landinu og hann var fluttur til Akureyrar,“ segir Ásgeir en þaðan hafi svo verið haldið í farþegaskipið og sjúklingurinn fluttur þaðan og á Akureyri. Flugvélin send með þyrlunum Stuttu seinna hafi fjórða útkallið borist en það var vegna veikinda á Patreksfirði. Tvö af fjórum útköllum hafi sem fyrr segir verið djúpt á sjó en þá sé áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvélinni, einnig kölluð út til þess að finna út hagstæðustu flugleið og aðstoða við samskipti og þvíumlíkt. „Þannig að þetta er búið að vera ansi viðburðaríkur dagur hjá varðstjórum í stjórnsýslu Gæslunnar og hjá áhöfnunum sem hafa bara ekki stoppað,“ segir Ásgeir en síðustu daga hefur mikið mætt á þeim sömuleiðis. „Þetta er kannski í takt við svona kannski síðustu daga, á fimmtudaginn voru tvö svona löng útköll, annað einmitt í skip, djúpt norður af landinu og síðan hitt á Grænlandi sem Gæslan sinnti eða þyrlusveitin.“ Ásgeir segir óvanalegt að svo mörg útköll hafi borist Landhelgisgæslunni á einum degi. Á myndinni má sjá TF-GNÁ en myndin er úr safni.Vísir/Villhelm Hann segir öll útköllin hafa gengið mjög vel og það sé fyrir öllu. Það sé aukið álag sem fylgi því þegar útköll berist svona eitt ofan í annað og þá þurfi að forgangsraða. „Þá þarf svolítið svona bara að meta það hvar þörfin er mest og forgangsraða þá eftir verkefnum,“ segir hann og bætir við „það eru margir sem koma að útköllunum sem þessum.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Landhelgisgæslan Sjúkraflutningar Flatey Noregur Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Sjá meira