Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar 22. ágúst 2026 13:32 Nokkuð hefur verið rætt um kostnað vegna mögulegra aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Markmið þessarar greinar er ekki að færa rök með eða á móti aðild, heldur að setja kostnaðinn við að fara í aðildarviðræður við ESB í samhengi við þann fjölda landsmanna sem kostnaðurinn dreifist á. Beinn kostnaður segir ekki alla söguna Ljóst er að heildarkostnaður við slíkar viðræður yrði meiri en sá beini kostnaður sem stjórnvöld hafa metið, þ.e. um 1,9 milljarða króna. Til viðbótar má til að mynda gera ráð fyrir umtalsverðri vinnu innan stjórnsýslunnar, hjá fyrirtækjum sem og hagsmunasamtökum. Ekki liggur fyrir opinbert mat á þessum viðbótarkostnaði. Í þessari grein er miðað við að heildarkostnaður viðræðnanna gæti numið um 4–8 milljörðum króna. Bilið endurspeglar þá óvissu sem ríkir um umfang og kostnað þeirrar vinnu sem viðræðurnar myndu kalla á. Viðræðurnar skapa einnig verðmæti sem erfitt er að meta til fjár Á móti kemur að viðræðurnar geta skapað verðmæti sem felast í aukinni þekkingu og upplýsingum um þau kjör sem Íslandi gætu staðið til boða í aðildarsamningi. Í raun má líta á heildarkostnaðinn sem eins konar verðmiða þess að fá skýrari mynd af því hvað aðildarsamningur við Evrópusambandið gæti falið í sér. Hér er því ekki reynt að meta nettó þjóðhagsleg áhrif aðildarviðræðnanna, heldur einfaldlega að setja mögulegan kostnað þeirra í samhengi. Heildarkostnaður 300–700 krónur á mánuði Ef gert er ráð fyrir að heildarkostnaðurinn nemi 4–8 milljörðum króna yfir 2,5 ára tímabil jafngildir það um 130–270 milljónum króna á mánuði. Miðað við tæplega 400 þúsund íbúa samsvarar það um 300–700 krónum á hvern landsmann á mánuði. Kostnaðinn þarf að meta í samhengi Hvort ráðast eigi í viðræður er mat hvers og eins kjósanda. Í því samhengi er gagnlegt að hafa kostnaðinn til hliðsjónar. Sé heildarkostnaði dreift á alla Íslendinga gæti kostnaðurinn numið sem svarar nokkrum hundruðum króna á mánuði á hvern landsmann á meðan á viðræðunum stendur. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valur Þráinsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Nokkuð hefur verið rætt um kostnað vegna mögulegra aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Markmið þessarar greinar er ekki að færa rök með eða á móti aðild, heldur að setja kostnaðinn við að fara í aðildarviðræður við ESB í samhengi við þann fjölda landsmanna sem kostnaðurinn dreifist á. Beinn kostnaður segir ekki alla söguna Ljóst er að heildarkostnaður við slíkar viðræður yrði meiri en sá beini kostnaður sem stjórnvöld hafa metið, þ.e. um 1,9 milljarða króna. Til viðbótar má til að mynda gera ráð fyrir umtalsverðri vinnu innan stjórnsýslunnar, hjá fyrirtækjum sem og hagsmunasamtökum. Ekki liggur fyrir opinbert mat á þessum viðbótarkostnaði. Í þessari grein er miðað við að heildarkostnaður viðræðnanna gæti numið um 4–8 milljörðum króna. Bilið endurspeglar þá óvissu sem ríkir um umfang og kostnað þeirrar vinnu sem viðræðurnar myndu kalla á. Viðræðurnar skapa einnig verðmæti sem erfitt er að meta til fjár Á móti kemur að viðræðurnar geta skapað verðmæti sem felast í aukinni þekkingu og upplýsingum um þau kjör sem Íslandi gætu staðið til boða í aðildarsamningi. Í raun má líta á heildarkostnaðinn sem eins konar verðmiða þess að fá skýrari mynd af því hvað aðildarsamningur við Evrópusambandið gæti falið í sér. Hér er því ekki reynt að meta nettó þjóðhagsleg áhrif aðildarviðræðnanna, heldur einfaldlega að setja mögulegan kostnað þeirra í samhengi. Heildarkostnaður 300–700 krónur á mánuði Ef gert er ráð fyrir að heildarkostnaðurinn nemi 4–8 milljörðum króna yfir 2,5 ára tímabil jafngildir það um 130–270 milljónum króna á mánuði. Miðað við tæplega 400 þúsund íbúa samsvarar það um 300–700 krónum á hvern landsmann á mánuði. Kostnaðinn þarf að meta í samhengi Hvort ráðast eigi í viðræður er mat hvers og eins kjósanda. Í því samhengi er gagnlegt að hafa kostnaðinn til hliðsjónar. Sé heildarkostnaði dreift á alla Íslendinga gæti kostnaðurinn numið sem svarar nokkrum hundruðum króna á mánuði á hvern landsmann á meðan á viðræðunum stendur. Höfundur er hagfræðingur.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar