Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Samúel Karl Ólason skrifar 21. ágúst 2026 13:21 Donald Trump virðist hafa málað sig út í horn hvað varðar Íran. AP/Jacquelyn Martin Donald Trump hefur heitið því að beita klerkastjórnina í Íran enn harðari efnahagsaðgerðum og þvinga Írani þannig til uppgjafar, þar sem beinn hernaður virðist ekki ætla að virka. Þá segist forsetinn ætla að einangra Íran með því að beita ríki sem eiga í viðskiptum við klerkastjórnina einnig refsiaðgerðum.
Stríðið gegn Íran hefur staðið yfir í tæpt hálft ár og virðist lítið útlit fyrir að því muni ljúka á næstunni, þar sem samningar þykja ólíklegir og geta Bandaríkjanna til að ná fram hernaðarlegum sigri hefur verið dregin í efa. Því hefur Trump ákveðið að breyta til og beita frekari efnahagsaðgerðum og auka þannig þrýstinginn á klerkastjórnina í Tehran en Íranir hafa á undanförnum árum átt í verulegum efnahagsvandræðum. Sjá einnig: Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Aðgerðum þessum hefur Trump líkt við „efnahagslegan D-dag“ en það nafn vísar til innrásar Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvernig þessar aðgerðir eiga að líta út og stendur til að opinbera þær þann 24. ágúst. Scott Bessent, fjármálaráðherra, gaf þó sterklega til kynna í viðtali við CNBC í gær að ríkisstjórn Trumps myndi ekki veigra sér við því að beita alla þá sem eiga í viðskiptum við Írani einnig refsiaðgerðum. Í viðtalinu sagði Bessent að ef Bandaríkjamenn kæmust á snoðir um að ríki ættu í viðskiptum við Íran og jafnvel þó þau reyndu að hylma yfir það, myndu Bandaríkjamenn beita refsiaðgerðum. „Það er kominn tími fyrir bandamenn okkar og allan heiminn til að taka ákvörðun. Við ætlum að rústa efnahagi þessarar morðóðu ríkisstjórnar.“ Bessent tók fram að umfangsmiklar hernaðaraðgerðir væru ekki líklegar. JD Vance, varaforseti, hefur slegið á svipaða strengi og sagt þessar umræddu refsiaðgerðir vera „nýjan fasa“ í átökunum gegn klerkastjórninni, samkvæmt frétt BBC. Hann sagði efnahagsaðgerðir skilvirkasta tól Bandaríkjanna. Refsiaðgerðir frá upphafi Klerkastjórnin hefur verið beitt umfangsmiklum refsiaðgerðum af Bandaríkjunum, nánast frá stofnun hennar árið 1979. Þrátt fyrir það hefur ríkið átt í töluverðum viðskiptum, sem oft eru framkvæmd í laumi. Stærstu viðskiptafélagar Íran eru Kína, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Tyrkland, Írak, Óman, Pakistan og Indland, eins og fram kemur í grein Reuters. Kínverjar eru langstærsti kaupandi heimsins á íranskri hráolíu og kaupa um átta prósent hennar, sem er gjarnan bókuð sem olía frá Malasíu eða Indónesíu vegna refsiaðgerða Bandaríkjanna. Kaupin eru framkvæmd á hátt sem gerir erfitt að vakta þau, samkvæmt heimildarmönnum Reuters. Bandaríkjamenn beittu kínverska olíuvinnslu refsiaðgerðum fyrr á árinu fyrir að kaupa olíu frá Íran og hafa hótað aðgerðum gegn kínverskum bönkum, komi þeir að kaupum á olíu frá Íran. Furstadæmin slitu á öllu viðskipti Furstadæmin hafa um árabil verið ein helsta líflína klerkastjórnarinnar og leið hennar til að komast hjá refsiaðgerðum, þó ríkin hafi oft átt í deilum. Samkvæmt grein New York Times er áætlað að árið 2024 hafi um þriðjungur innflutnings Írana komið frá furstadæmunum. Þá selja Íranir mikið af eigin vörum þangað. Á dögunum urðu þó ákveðin vatnaskil, þegar utanríkisráðuneyti furstadæmanna tilkynnti að ríkið myndi hætta öllum viðskiptum við Írani. Ráðamenn í furstadæmunum höfðu skömmu áður sakað Írani um að skjóta enn fleiri eldflaugum að ríkinu. Ekki liggur fyrir hvort Bandaríkjamenn hafi þrýst á ráðamenn í furstadæmunum. Tyrkir eiga einnig í töluverðum viðskiptum við Írani. Þeir kaupa meðal annars jarðgas þaðan og flytja eigin vörur til Íran. Viðskiptin ríkjanna á milli eru talin um fimm til sex milljarða dala virði. Ráðamenn í Ankara hafa ekki gefið til kynna að þeir ætli að hætta þessum viðskiptum. Svipaða sögu er að segja frá Írak en nágrannaríkin eiga í töluverðum viðskiptum sem metin voru á rúmlega tíu milljarða dala í fyrra, samkvæmt írökskum hagtölum. Um helmingurinn af því eru kaup Íraka á jarðgasi frá Íran en dregið hefur úr viðskiptunum á þessu ári vegna stríðsins. Frekari refsiaðgerðir gegn Íran gætu gert Írökum erfiðara um vik með að eiga í viðskiptum við Írani. Það sama á við aðra viðskiptafélaga klerkastjórnarinnar. Framtíðin mun líklega ráðast af því hversu hart ríkisstjórn Trumps mun ganga fram í að refsa þeim ríkjum sem eiga í viðskiptum við Íran. Gætu séð veikleika á Trump Í greiningu New York Times segir að yfirlýsingum Bandaríkjamanna um þessar hertu efnahagsaðgerðir fylgi skýr skilaboð. Trump-liðar vilji ekki að hernaður hefjist á nýjan leik og óttast það jafnvel, þar sem Trump hefur margsinnis hótað umfangsmiklum árásum á Íran en ekki staðið við hótanirnar. Klerkastjórnin hefur staðið af sér árásir í sex mánuði og hefur tekist að setja verulegan þrýsting á Trump með lokun Hormússunds og takmörkun siglinga olíuflutningaskipa um sundið og með árásum á nágranna sína og bandarískar herstöðvar. Stríðið er verulega óvinsælt í Bandaríkjunum, sem gæti komið niður á Repúblikönum í þingkosningunum í nóvember. Ráðamenn í Íran, og þá sérstaklega harðlínumenn sem sagðir eru vilja frekari átök, gætu séð Trump í veikri stöðu og reynt að auka þrýstinginn á hann með frekari árásum, tilheyrandi átökum og væntanlegri hækkun á olíuverði á heimsvísu.
Íran Bandaríkin Donald Trump Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Sjá meira