Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar 21. ágúst 2026 11:15 Það styttist í lýðræðisveislu og við fáum að kjósa um spurninguna: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“. En hvað þýðir þetta í raun? Það er stóra spurningin sem þjóðin hefur rætt í þaula síðustu vikur og mánuði. Fyrr í vikunni sótti ég fund sem forsætisráðherra hélt í Brún í Bæjarsveit og ég vil þakka Kristrúnu fyrir að gefa sér tíma til að koma út á land og taka samtalið. Það eru nefnilega skiptar skoðanir um áhrif mögulegrar aðildar. Þó að í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar séu settir ákveðnir varnaglar varðandi landbúnað mun ég segja NEI, einfaldlega vegna þess að ég treysti því ekki að eftir þeim verði farið þegar á reynir. Norðurslóðastuðningurinn í Finnlandi er líklega það fordæmi sem hvað oftast er vísað til þegar rætt er um mögulegar sérlausnir fyrir íslenskan landbúnað innan ESB. Það er því mikilvægt að átta sig á því hvað raunverulega felst í þeirri leið – og ekki síður hvað felst ekki í henni. Finnska undanþágan er fyrst og fremst verndarákvæði en ekki vaxtarákvæði. Hún var sett á sínum tíma til að koma í veg fyrir samdrátt í landbúnaði á norðurslóðum Finnlands og tryggja að þar gæti áfram verið stundaður landbúnaður við erfiðar náttúrulegar aðstæður. Hún var hins vegar ekki hugsuð sem tæki til að byggja upp nýjan samkeppniskraft, auka framleiðslu eða skapa ótakmarkað svigrúm til vaxtar. Þarna liggur grundvallarmunurinn á stöðu Finnlands þá og þeirri stöðu sem Ísland stendur frammi fyrir í dag. Íslendingar eru um 400 þúsund í dag en allar horfur benda til þess að hér geti búið um 600 þúsund manns eftir 25–30 ár. Ef við ætlum að viðhalda eða styrkja fæðuöryggi þjóðarinnar þarf íslenskur landbúnaður því ekki aðeins að halda stöðu sinni heldur auka framleiðslu á næstu áratugum. Finnska leiðin byggir aftur á móti á sögulegum viðmiðum. Viðmiðunartímabilið er árin 1991–1993, rétt fyrir inngöngu Finnlands í ESB, og stuðningurinn má ekki leiða til þess að framleiðsla og stuðningur fari umfram þau viðmið sem lögð voru til grundvallar við inngönguna. Kerfið snýst þannig fyrst og fremst um að varðveita þá landbúnaðarframleiðslu sem fyrir var. Þessu fylgja jafnframt skýr takmörk. Sett eru viðmið um umfang framleiðslunnar, búfjáreiningar, landnotkun og heildarfjárhæð stuðnings. Núverandi ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB gildir til 2027 og þá þurfa Finnar á ný að fá samþykki fyrir áframhaldandi fyrirkomulagi. Þess vegna er varasamt að halda finnsku leiðinni á lofti eins og hún sýni að Ísland geti einfaldlega samið um sérlausn sem tryggi íslenskum landbúnaði sama eða meira svigrúm en hann hefur í dag. Finnska leiðin var hönnuð til að verja landbúnað gegn samdrætti, ekki til að byggja undir aukna framleiðslu. Þetta finnst mér oft gleymast í umræðunni, þar á meðal þegar stjórnvöld ræða möguleika Íslands í aðildarviðræðum. Kannski er ein stærsta ógnin við landbúnað og matvælaframleiðslu í hinum vestræna heimi í dag ekki skortur á landi, þekkingu eða tækni. Hún kann einfaldlega að vera skortur á skilningi stjórnmálanna á því hvernig þessi atvinnugrein virkar og hvers hún þarfnast til lengri tíma. Matvælaframleiðsla verður ekki byggð upp á einu kjörtímabili. Bóndi sem tekur ákvörðun um að byggja fjós, fjárhús eða gróðurhús, rækta upp land eða fjárfesta í nýjum búnaði er að taka ákvörðun til áratuga. Landbúnaður þarf því fyrirsjáanleika, langtímahugsun og stjórnvöld sem skilja að fæðuöryggi verður ekki búið til þegar neyðin er skollin á. Þá er einfaldlega orðið of seint. Þetta er sérstaklega mikilvægt á Íslandi. Við erum að mörgu leyti orðið meira borgríki en flestar Evrópuþjóðir þegar horft er til þess hvar fólkið býr og hvar pólitískt vægi liggur. Stór hluti þjóðarinnar og þar með stjórnmálanna lifir í umhverfi þar sem maturinn birtist fullunninn í hillum verslana. Tengslin við frumframleiðsluna verða sífellt veikari og hættan er sú að ákvarðanir um landbúnað séu teknar út frá sjónarhorni neytandans í borginni en ekki út frá því hvað þarf til þess að matvælin verði yfirhöfuð framleidd. Það getur gert íslenska stjórnmálaumræðu um landbúnað óþarflega þröngsýna. Við horfum gjarnan á verð vörunnar í hillunni í dag en síður á það hvort hér verði öflug innlend matvælaframleiðsla eftir 10, 20 eða 30 ár. Við tölum um samkeppni og ódýrari innflutning en gleymum stundum að spyrja hvað verði um framleiðslugetu landsins ef innlendi landbúnaðurinn veikist á sama tíma. Þetta skiptir máli þegar rætt er um Evrópusambandið. Við vitum að íslenskur landbúnaður mun vegna legu landsins, veðurfars, smæðar markaðarins og hás framleiðslukostnaðar seint geta keppt við evrópskan landbúnað á sömu forsendum. Ef íslenskur landbúnaður á að geta staðið undir aukinni matvælaframleiðslu fyrir ört stækkandi þjóð og jafnframt tekist á við aukinn innflutning þarf svigrúm til sérstakra aðgerða sem taka mið af íslenskum aðstæðum. Það getur falist í stuðningi, undanþágum, sveigjanleika í regluverki og öðrum sértækum aðgerðum. Spurningin er hins vegar hversu mikið slíkt svigrúm raunverulega er hægt að tryggja til framtíðar innan sameiginlegrar landbúnaðarstefnu ESB. Og þar er ekki nóg að íslensk stjórnvöld segist ætla að „leggja áherslu á“ íslenskan landbúnað í viðræðum. Það skiptir máli hvað fæst samþykkt, hvað verður varanlegt og hvaða svigrúm íslensk stjórnvöld hafa sjálf til að bregðast við breyttum aðstæðum eftir 10, 20 eða 30 ár. Þegar finnska fordæmið er skoðað í heild sinni sést að það svigrúm er mun þrengra en stundum er gefið í skyn. Við eigum því ekki að spyrja eingöngu hvort hægt sé að semja um einhverjar undanþágur fyrir íslenskan landbúnað við inngöngu. Við þurfum að spyrja hvort þær undanþágur gefi okkur það svigrúm sem þarf til að viðhalda, efla og auka íslenska matvælaframleiðslu til framtíðar. Ég er ekki sannfærður um að svo sé. Það er einmitt þess vegna sem ég tel hagsmunum íslensks landbúnaðar – og þar með íslensks fæðuöryggis – betur borgið utan sameiginlegrar landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Höfundur er formaður Sauðfjárbænda BÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Eyjólfur Ingvi Bjarnason Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun