Handbolti

Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frá­bær bónus að spila með Hauki frænda“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar Örn Jónsson skrifaði undir fjögurra ára samning við Rhein-Neckar Löwen.
Elvar Örn Jónsson skrifaði undir fjögurra ára samning við Rhein-Neckar Löwen. rhein-neckar löwen

Fyrir næsta tímabil söðlar Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handbolta, um og gengur í raðir Rhein-Neckar Löwen frá Magdeburg.

Elvar gekk til liðs við Magdeburg frá Melsungen fyrir síðasta tímabil. Hann varð þýskur meistari með Magdeburg í vetur en þar leikur hann með Ómari Inga Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.

Elvar spilar með Magdeburg á komandi tímabili en færir sig svo um set til Löwen. Þar hittir hann fyrir Hauk Þrastarson, frænda sinn og samherja í Íslandsmeistaraliði Selfoss 2019. Hinn 28 ára Elvar samdi við Löwen til 2031.

„Löwen sannfærði mig um sína framtíðarsýn í góðum samtölum. Þess vegna er ég mjög ánægður með að verða hluti af félaginu á næstu árum. Að fá að spila með frænda mínum, Hauki, á vellinum er frábær bónus. Það hefur alltaf verið gaman að spila í SAP Arena þar sem stuðningsmennirnir skapa frábæra stemningu. Ég hlakka nú þegar til þess,“ segir Elvar í frétt á heimasíðu Löwen.

Holger Bachert, framkvæmdastjóri Löwen, kveðst í skýjunum með að hafa klófest Elvar.

„Að okkur hafi tekist að sannfæra leikmann eins og Elvar um að gera langtímasamning við Rhein-Neckar Löwen sýnir að við erum á réttri leið. Hann var okkar óskaleikmaður í þessa stöðu. Við Uwe og Maik höfðum snemma augastað á honum og fylgdumst náið með honum á nýliðnu tímabili. Við erum því mjög ánægðir með að sjá hann spila í gulu treyjunni frá 2027,“ segir Bachert.

Eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Selfossi 2019 fór Elvar til Skjern í Danmörku þar sem hann lék um tveggja ára skeið. Þaðan lá leiðin svo til Melsungen.

Elvar hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu á undanförnum árum og spilað með því á öllum stórmótum frá 2019.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×