Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Andri Broddason skrifar 18. ágúst 2026 07:01 Yu Qi Shi (til hægri) tapaði óvænt í fyrsta leik heimsmeistaramótsins gegn Ayush Shetty (til vinstri). Sanchit Khanna/Getty Images Heimsmeistaramótið í badminton hófst í gær og urðu óvænt úrslit strax á fyrsta degi þegar efsti leikmaður heimslistans, Yu Qi Shi, tapaði óvænt í fyrsta leik.
Heimsmeistaramótið í badminton er haldið í Nýju-Delí á Indlandi í ár og mætti ríkjandi heimsmeistari Yu Qi Shi Indverjanum Ayush Shetty. Þeir mættust fyrr á árinu í úrslitaleik Asíuleikanna þar sem Yu Qi Shi vann örugglega. Annað var upp á teningnum í dag og var Shi brugðið eftir að hafa tapað fyrstu lotunni 21-14. Hann kom til baka og vann aðra lotu örugglega 21-13 og ljóst að úrslitin myndu ráðast í þriðju lotu. Shetty var kominn með gott forskot í úrslitalotunni og útlitið orðið svart fyrir Shi þar sem staðan var orðin 17-6 fyrir Shetty en þá kviknaði á Shi. Shetty vildi halda forystunni og ná aðeins auðveldum stigum en það er erfitt gegn besta leikmanni heims. Shi náði hægt og rólega að nálgast Shetty og var hann virkilega farinn að finna fyrir pressunni. Aðeins eitt stig var orðið á milli þeirra þar sem Shetty var 20-19 yfir en hann náði að vinna það stig og slá heimsmeistarann úr leik. Eftir leikinn var Shetty himinlifandi með að hafa náð að vinna ríkjandi heimsmeistarann á heimavelli en þrátt fyrir að hafa unnið ber hann mikla virðingu fyrir Yu Qi Shi. „Hann er alltaf rólegur. Hann sýnir ekki neinar tilfinningar og það gerir hann svo hættulegan þegar hann er að vinna upp forskot. Hann er svo rólegur að maður heldur að hann sé ekki undir neinni pressu og það sýndi sig í lokin þegar hann var að ná mér. Shi Yu Qi er búinn að vera í heilt ár samfleytt sem efstui leikmaður á heimslista en hann komst fyrst efst á heimslistann árið 2024. Það er því gríðarlegt högg fyrir kappann að detta út í fyrstu umferð og ná ekki að gera atlögu að því að verja titilinn sinn. Íslandsvinurinn og stærsta von Danmerkur unnu Fleiri stór nöfn áttu leik í dag þar sem danska hetjan Anders Antonsen, sem er fjórði á heimslista, vann Dicky Dwi Pangestu örugglega í fyrsta leik. Antonsen hefur verið að glíma við meiðsli en hann reynir að hrista þau af sér á meðan mótinu stendur. Hann hefur verið stærsta nafn Danmerkur í badminton síðan Viktor Axelsen lagði spaðann á hilluna fyrr í ár. Tien Chen Chou hefur komið nokkrum sinnum til Íslands að þjálfa í TBR-húsinu.TBR Íslandsvinurinn Tien Chen Chou, sem er sjötti á heimslistanum, vann Clarence örugglega í sínum fyrsta leik. Chou vann Opna kínverska risamótið fyrr í sumar og stefnir á að halda góðu gengi. Milli keppna hefur hann nokkrum sinnum komið í heimsókn og þjálfað keppnishóp TBR þar sem hann deilir sinni reynslu. Hann er orðinn náinn félagi TBR félagsins og því í miklu uppáhaldi hjá íslenskum leikmönnum.
Badminton Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Sjá meira