Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. ágúst 2026 09:07 Tupac og Knight árið 1996. Getty/Nitro Lögmenn Duane Keith Davis, sem grunaður er um að hafa skipulagt morðið á tónlistarmanninum Tupac Shakur árið 1996, voru í þeirri undarlegu stöðu í gær að reyna að sannfæra kviðdóm um að skjólstæðingur þeirra væri þekktur lygalaupur.
Réttarhöld yfir Davis hófust í gær en hann er hefur verið sakaður um að hafa lagt á ráðin um morðið á Tupac til að hefna fyrir árás rapparans og fylgdarlið hans á frænda Davis, Orlando Anderson, á MGM Grand hótelinu sama dag. Davis, sem var jafnan kallaður Keffe D, fór fyrir Crips gengi í Compton í Kaliforníu og átti í útistöðum við Bloods gengi á svæðinu. Báðir hópar voru staddir í Las Vegas daginn sem Tupac var myrtur, til að vera viðstaddir bardaga Mike Tyson og Bruce Seldon. Saksóknarar sögðu fyrir dómi í gær að Davis hefði farið fyrir hóp sem fór á eftir Tupac og Marion „Suge“ Knight, fyrrverandi forstjóra Death Row Records í kjölfar árásarinnar á Andreson. Þeir röktu hvernig skotið hefði verið á bifreið Tupac og Knight úr bifreið Davis og fylgdarliðs hans, með þeim afleiðingum að byssukúla strauk Knight og Tupac særðist alvarlega. Tónlistarmaðurinn lést af sárum sínum fimm dögum síðar. Aðal sönnunargögnin í málinu gegn Davis eru frásagnir hans sjálfs af atburðarásinni, sem hann hefur lýst bæði í viðtölum við lögreglu og í útgefnum endurminningum sínum. Samkvæmt Davis var það frændi hans, Anderson, sem skaut Tupac banaskotinu en hann lést árið 1998. Eins og fyrr segir freistuðu verjendur Davis þess hins vegar í gær að sannfæra kviðdóminn um að ekkert væri að marka skjólstæðing þeirra, þar sem hann væri þekktur fyrir ýkjur og skáldskap. Morðið á Shakur hefur verið uppspretta samsæriskenninga í 30 ár og Davis sjálfur bendlað tónlistarmógúlinn Sean Combs við glæpinn. Deilur höfðu verið uppi milli Death Row Records og Bad Boy Records, útgáfufélags Combs, og Davis hefur gert því skóna í gegnum tíðina að Combs hafi viljað Tupac dauðan. Combs, sem afplánar dóm í New York, kom hins vegar aðeins einu sinni við sögu í gær, þegar saksóknarinn í málinu sagði gengi Davis hafa sinnt öryggisvörslu fyrir tónlistarmanninn. Ekkert bendir til þess að Combs muni bera vitni við réttarhöldin. Þá hefur Knight sagt að hann hafi engan áhuga á að taka þátt í réttarhöldunum.
Hollywood Erlend sakamál Bandaríkin Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete Sjá meira