Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar 18. ágúst 2026 08:02 Það var þrá og von okkar Íslendinga að búa „langt frá heimsins vígaslóð“. Seinni heimsstyrjöldin færði okkur heim sanninn um að sú vígaslóð var ekki umflúin. Í kjölfarið höfum við gengið til samstarfs við aðrar þjóðir með aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu til að leggja okkar af mörkum til friðar og um leið til að verja frelsi okkar og fullveldi. Síðan höfum við eflt efnahagssamstarf með aðild að EFTA og EES. Þann 29. ágúst n.k. tökum við ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort við viljum kanna í þaula kosti þess og galla að ganga lengra og skipa okkur í hóp 27 Evrópuþjóða í Evrópusambandinu. Nú er að stökkva eða hrökkva. Hafni meirihluti kjósenda því að halda áfram viðræðum við þessar þjóðir, getur þess verið langt að bíða að þráðurinn verði aftur tekinn upp. Aðild að Evrópusambandinu er hjá mörgum fyrst og fremst spurning um hvort við „töpum“ eða „græðum“ fjárhagslega. Margt er fullyrt í þeim efnum, oft með hæpnum rökum, en aðildarviðræður ættu að skýra þá hlið málsins. Efnahagsmálin eru þó að mínu mati ekki það mikilvægasta. Öryggi og lýðræði Við lifum í viðsjárverðum heimi þar sem lýðræðið á í vök að verjast og einræðisseggir vaða uppi og beita valdi – einkum þeir í Rússlandi en jafnvel í Bandaríkjunum líka. Því er okkur brýnt að styrkja enn frekar pólitísk tengsl við þær þjóðir sem vilja hafa lýðræði, réttarríki og samhjálp að leiðarljósi. Þetta eru einkum grannríki okkar í Evrópu, sem hafa velflest talið sér best borgið innan Evrópusambandsins. Viðurkennt skal að blikur eru á lofti í þessum efnum, líka í Evrópu, þar sem öfgasinnaðir þjóðrembuflokkar sækja í sig veðrið. En því verður að treysta að fólk í grannríkjum okkar haldi vöku sinni. Þannig tókst Pólverjum og Ungverjum að hrista af sér lýðræðisfjendur. Þegar samningur um aðild lægi fyrir eftir nokkur ár, ætti að vera orðið ljóst hvert stefnir. Ef þróunin yrði óheillavænleg gætum við hafnað samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fullveldið Sagt er að með aðild að Evrópusambandinu séum við að fórna fullveldi okkar. Vissulega felur aðild í sér takmarkanir á beitingu fullveldis, en það er ekki hið sama og að fórna fullveldinu. Í ræðu á aldarafmæli Þjóðminjasafnsins vék Gylfi Þ. Gíslason, þá menntamálaráðherra, að þeirri hugsun Winstons Churchill að eitt helsta ráðið til að efla sjálfstæði þjóðar væri að fórna því að nokkru. Vitaskuld fylgir víðtækri samvinnu þjóða innan Evrópusambandsins að hluta ríkisvalds er deilt með öðrum, en jafnframt fá aðildarríkin hlutdeild í sameiginlegu ákvörðunarvaldi. Evrópusambandið er samband fullvalda ríkja sem hafa með sáttmálum falið sameiginlegum stofnunum tilteknar valdheimildir. Það er ekki sambandsríki á borð við Bandaríkin ,Breyting Evrópusambandsins í eiginlegt sambandsríki þyrfti samþykki allra aðildarríkjanna – þar með talið Íslands ef það væri þá orðið aðildarríki. Ólafur Jóhannesson, prófessor í stjórnskipunarrétti og síðar formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, fjallaði 1962 um hugsanlega aðild Íslands að Efnahagsbandalagi Evrópu, forvera Evrópusambandsins. Hann sagði að „engum [komi] til hugar að halda því fram, að aðildarríki Efnahagsbandalagsins [...] séu ekki eftir sem áður fullvalda ríki“ og bætti við: „Þær kvaðir, sem fullvalda ríki almennt telja sér fært að undirgangast [...], myndu eigi heldur taldar ósamrýmanlegar fullveldi Íslands. Það myndi þrátt fyrir þvílíkar fullveldistakmarkanir talið fullgildur þjóðréttaraðili.“ Stjórnarskráin Verði framhald aðildarviðræðna samþykkt af meirihluta kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslunni er brýnt að huga strax að nauðsynlegum stjórnarskrárbreytingum. Í fyrsta lagi verður ekki gengið í svo víðtækt samstarf án skýlausrar heimildar í stjórnarskrá. Þá þarf að taka upp ákvæði um að sjálf aðildin, komi til hennar, kalli á sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu. Og að lokum er tilefni til að setja í stjórnarskrána fortakslaust ákvæði um að auðlindir, sem ekki eru í einkaeigu, séu þjóðareign. Slíkt ákvæði gæti styrkt samningsstöðu okkar í frekari viðræðum við Evrópusambandið. Tekið var á þessum þremur þáttum í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs 2011. Tillögurnar hafa ekki náð fram að ganga, en úr því má enn bæta áður en aðildarsamningur yrði til lykta leiddur. Merkjum við JÁ-ið 29. ágúst n.k. og stefnum þannig að því að styrkja fullveldi okkar og frelsi með samstarfi við vinaþjóðir okkar. Höfundur er fyrrverandi prófessor og áhugamaður um lýðræðismál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Öryggis- og varnarmál Þorkell Helgason Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar