Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Telma Tómasson og Lovísa Arnardóttir skrifa 17. ágúst 2026 13:36 Sigríður Kristinsdóttir segir mikinn áhuga á atkvæðagreiðslunni. Sýn Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi. „
Mjög góð kjörsókn. Hjá sýslumönnunum á höfuðborgarsvæðinu erum við núna það sem af er degi búin að taka við 478 kjósendum til okkar,“ segir hún. Samtals segir Sigríður að 10.769 atkvæði séu komin í hús hjá sýslumönnum á höfuðborgarsvæðinu. Ef litið er svo til allra sem hafa greitt atkvæði hjá þeim, sýslumönnum á landsbyggð, sendiráðum og ræðismönnum eru atkvæðin 16.740. Meiri áhugi en þau bjuggust við „Þetta er mun meiri kjörsókn en við bjuggumst við, það er mikill áhugi greinilega fyrir þessum kosningum.“ Sigríður á von á því að það bæti enn í næstu tvær vikurnar. Mögulega gæti þátttakan verið meiri utan kjörfundar í ár en árið 2024, í forsetakosningum, þegar um 28 þúsund greiddu atkvæði utan kjörfundar. Hún segir að síðasta föstudag hafi hámarkið á einum degi verið um 900 atkvæði en nú, um miðjan dag, séu þau komin í 940 atkvæði. Það megi því búast við því að þátttakan utan kjörfundar fari stigvaxandi haldi þetta svona áfram. Hægt er að greiða atkvæði í Hlíðarsmára 1 og svo var opnaður nýr kjörstaður í Kringlunni í dag á fyrstu hæð við rúllustigann þar sem Nike Air verslunin var áður til húsa. Þar verður opið alla virka daga frá klukkan 12 til 18.30 en næstu helgi er opið frá tólf til 18 á laugardegi og frá tólf og til 17.30 á sunnudegi.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Kringlan Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira