Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar 17. ágúst 2026 10:16 Ágústmánuður er mánuður hátíða, gleði og jákvæðni í Reykjavík. Þungamiðjan er í mínum huga Reykjavíkurmaraþonið þar sem ég hef reimað á mig skóna undanfarin mörg ár til að taka þátt í 10 km hlaupinu sem er hátindur hlaupaársins hjá mér. Það er mikil orka í kringum þetta hlaup og stemming, það er eftirvænting í loftinu og stuðið á leiðinni, tónlistin og hvatningarhrópin eru ómetanleg og standa þar ákveðnar götur í Reykjavík og á Seltjarnesi upp úr, þið vitið hver þið eruð! Hlaupið er svo ekki bara hátíð hreyfingar og félagsskapar heldur er þarna vettvangur þar sem margvíslög félög og samtök sem standa öll fyrir mikilvæg og góð málefni fá tækifæri til að safna fé og vekja athygli og þessi þáttur málsins er mér mikilvægur og flestum hlaupurum held ég líka. Þarna sér maður hvernig fólk sem hefur glímt við sorg, missi og alskonar áskoranir nær að virkja sig til góðra verka með jákvæðni og samstöðu að leiðarljósi. Mér hefur alltaf fundist frekar erfitt að hlaupa, er frekar þungur á mér og fer hægt yfir. Þetta á reyndar ekki bara við um hlaup því þegar ég læt plata mig í fjallgöngu er ég líka alltaf aftast. Í kringum mig og á samfélagsmiðlum upplifi ég svo að fólk hjólar yfir Alpana, hleypur Laugaveginn (þ.e.a.s. þennan á hálendinu) á hálftíma og vakir sólarhringum saman og hleypur mörghundruð kílometra i einhverjum bakgarði. Samfélagsmiðlar eru svo fullir af alskonar ráðum um hreyfingu og upplýsingar um hvernig maður nái hinum ýmsu markmiðum af þessu tagi. Allt um það þá er það hollt og gott og mikilvægt að hreyfa sig. Ég hef prófað ýmislegt í því samhengi eins og ég giska á að þið hafið líka, og það eina sem ég hef getað almennilega haldið mig við eru hlaupin. Ég hef núna verið árstíðabundin hlaupari í 10-15 ár og náð að taka þátt í 10 km hlaupinu allnokkrum sinnum. Í mínum hlaupum hef ég ekki verið að bæta mig neitt sérstaklega, frekar hægt aðeins á og haldið mig við svipaðar vegalengdir og tek mér pásu yfir veturinn. Ég hef lesið ýmislegt um hlaup og fengið mýgrút af alskonar misgóðum ráðum. Þegar ég var að byrja þá gúgglaði ég hvort það væri hollt að hlaupa og fékk ansi ólík svör. Eitt svarið var NEI, hættu strax. Annað var já en þú skalt bara hlaupa stuttar vegalengdir eins hratt og þú getur og þriðja var já en þú skalt hlaupa langar vegalengdir hægt. Ég valdi að blanda saman og hlaupa stuttar vegalengdir hægt. Hlaup eru áhugaverð að því leytinu að þau eru bæði félagslegt athæfi og líka mjög einkaleg. Ég er mikil félagsvera og hef að mestu leyti í mínum hlaupum verið í félagsskap en líka tekið tímabil þar sem ég hef hlaupið einn. Það er líka hægt að nota tímann á hlaupum í núvitund og njóta umhverfis án þess að hlusta á neitt, það er hægt að efla andann og brýna sig með hvetjandi tónlist og líka að hlusta á hlaðvörp og bækur. Það virkar líka merkilega á minnið því maður fer að tengja saman ákveðna staði og eitthvað sem maður hlustaði á þegar maður hljóp þar. Þannig er Skerjafjörður staður ákveðinna enskra galdramanna og þegar ég kem út á Granda kvikna óljósar minningar um dularfulla neðansjávarborg. Félagslegi þátturinn er þó mikilvægur og ég hef hlaupið bæði með vinum og fjölskyldu og í kringum það hefur myndast hlaupahópurinn Krampi. Reglur hópsins eru almennt að hlaupa með mér og hlaupa frekar rólega. Við erum nú ekki sérstaklega fjölmennur hópur en mjög áhugasöm og dugleg við æfingar. Við höfum líka náð að útfæra mjög skemmtilega blöndu af félagslegum samskiptum og hlustun með því að við hlustum saman á hlaðvarp á hlaupunum sem er svo efni í gott spjall og pælingar að hlaupi loknu. Hópurinn er líka eins og er samsettur af mér, dætrum mínum og systur og dóttur hennar. Ég nefndi hér að ofan margvísleg ráð og pælingar um hvernig sé best að hlaupa, undirbua sig og bera sig að. Hvernig á að teygja, hvaða skóbúnaður er bestur og svo framvegis. Mikilvægasta umræðan af því tagi sem ég hef séð er þegar mér var þegar systir mín bentir mér á SAF, sem út leggst á ensku Slow As F…., og mín þýðing er Helvíti hægt. Þar komst ég að því að sú nálgun sem hafði þróast hjá mér (kannski af illri nauðsyn) að fara bara rólega yfir væri kannski ekki svo galin og við værum mörg á svipuðum stað. Bæði felur þetta í sér að það að vera eins og ég og komast bara ekkert svo hratt yfir er allt í góðu og kannski væri það líka gott fyrir þausem eru að rembast við að fara yfir á miklum hraða að slaka aðeins á og hlaupa hægar og njóta. Við erum sumsé fimm sem hlaupum sem Krampi í tíu kílómetrunum og í ár höfum við ákveðið að styðja mikilvægt starf MS félags Íslands. MS félagið heldur utan um og styður við þau sem eru með MS, veitir fræðslu, styrkir rannsóknir og eflir þekkingu á þessu erfiða sjúkdómi sem margir glíma við. MS félagið heldur vel utan um hlauparana sína og við vonum að við getum safnað vel til að liðsinna þeirra góða starfi. Ég vil bara ljúka þessu með að benda fólki á að þátttaka í svona hlaupi er stórkostleg upplifun og ef þið hafið tök á að vera með að kýla á það. Mér finnst líka að við ættum öll að fara inn á Hlaupastyrk og styðja við þau málefni sem ykkur þykja mikilvæg og merkileg og vera þannig með í þessari frábæru hátíð gleði og þakklætis - hvort sem við förurm helvíti hægt eða rjúkum áfram eins og vindurinn. Höfundur er kennari sem hleypur hægt Tenglar: Hér er SAF síðan: https://slowafrunclub.com/ MS félagið: https://www.msfelag.is/is/um-felagid Hlaupastyrkur: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur Styrkja hlaupahópinn Krampa! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hlaup Reykjavíkurmaraþon Mest lesið Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir Skoðun Skoðun Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun