Bogi Ísak Nilsson er látinn Atli Ísleifsson skrifar 17. ágúst 2026 09:58 Bogi Ísak Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri. Vísir/Anton Brink Bogi Ísak Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri, er látinn, 85 ára að aldri.
Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu. Þar segir að hann hafi látist á heimili sínu síðastliðinn fimmtudag, 13. ágúst, eftir glímu við stutt en erfið veikindi. Í æviágripum segir að Bogi Ísak hafi fæðst á Siglufirði 24. nóvember 1940 og alist þar upp, en foreldrar hans voru Nils Ísaksson skrifstofustjóri og Steinunn Stefánsdóttir húsmóðir. Bogi lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1968 og starfaði svo sem fulltrúi sýslumanns og bæjarfógeta á Akureyri. Árið 1976 varð hann sýslumaður í Suður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Eskifirði. Árið 1986 var hann svo skipaður rannsóknarlögreglustjóri ríkisins. Hann gegndi fyrstur embætti ríkislögreglustjóra við stofnun embættisins árið 1997 en var skipaður ríkissaksóknari frá og með 1. janúar 1998. Bogi gegndi embætti ríkissaksóknara til 1. janúar árið 2008 en var svo einstöku sinnum settur ríkissaksóknari í nokkrum málum embættisins í seinni tíð. Eftirlifandi eiginkona Boga Ísaks er Elsa Petersen og eignuðust þau þrjú börn, Bernhard Nils, Boga Nils og Önnu Maríu. Barnabörnin eru níu og barnabarnabörnin sex talsins. Bogi verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. ágúst klukkan 13.
Andlát Lögreglan Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira