Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. ágúst 2026 09:54 Söngdívurnar Jóhanna Guðrún og Salka Sól. Blindspot/Viktor Bogdanski Söng- og leikkonan Salka Sól Eyfeld mun taka við af Jóhönnu Guðrúnu í Jólapartýi Skoppu og Skrítlu í Hörpu og Hofi í vetur. Einnig mun dóttir hennar, hin sjö ára Una Lóa, syngja í sýningunni.
Greint var frá því í síðustu viku að Jóhanna Guðrún Jónsdóttir myndi ekki vera áfram í sýningu Skoppu og Skrítlu sökum þess að hún á von á sínu fjórða barni. Nú er ljóst hvaða söngdíva tekur við hlutverkinu. „Það var yndislegt að fá að taka þátt í sýningunni síðastliðin jól en núna er fókusinn á að undirbúa komu litla jólabarnsins míns. Ég vona innilega að ég fái aftur tækifæri til að deila sviðinu með vinkonum mínum Skoppu og Skrítlu,“ segir Jóhanna Guðrún. Salka Sól og Jóhanna Guðrún með dætrum sínum.Blindspot/Viktor Bogdanski Salka er Skoppu og Skrítlu ekki ókunn því hún er ágætis vinkona þeirra, prjónaði á þær lopapeysur fyrir Þjóðhátíð í fyrrasumar og söng með þeim lagið „HæHó!“ ásamt dóttur sinni, Unu Lóu. „Á sama tíma og það er erfitt að kveðja elsku Jóhönnu Guðrúnu að þá ríkir líka mikill spenningur í leikhópnum að fá inn nýja söngdívu. Við hlökkum ótrúlega mikið til að bjóða Sölku Sól velkomna á sviðið og eigum von á sannkölluðum töfrum í jólapartýinu í ár!“ sagði í tilkynningu frá Skoppu og Skrítlu. Ánægð að sameina vinnu og samveru með dótturinni „Í dag getur barnaefni verið mjög hratt og áreitið mikið fyrir unga huga, og foreldrar eru sífellt meðvitaðri um hvaða efni þau velja fyrir börnin sín. Skoppa og Skrítla hafa alltaf lagt mikinn metnað í vandað, hlýlegt og skemmtilegt efni fyrir yngstu áhorfendurna, og mér finnst mjög gaman að fá að vera hluti af því,“ segir Salka Sól. Skoppa og Skrítla með Sölku Sól.Blindspot/Viktor Bogdanski Hin ellefu ára Margrét Lilja, dóttir Jóhönnu Guðrúnar, hefur leikið í sýningunni og mun gera það áfram þó móðirin hverfi á braut. Sömuleiðis mun hin sjö ára Una Lóa, dóttir Sölku Sólar, leika í sýningunni. „Ég er ótrúlega spennt að fá að stökkva inn í ævintýraheim Skoppu og Skrítlu um jólin. Jólin hafa alltaf verið annasamur tími hjá mér og því finnst mér sérstaklega dýrmætt að geta í þetta sinn sameinað vinnuna og samveruna með barninu mínu,“ segir Salka. Þó Salka komi inn í stað Jóhönnu þá verða engar stórvægilegar breytingar á sýningunni, Páll Óskar verður til að mynda á sínum stað sem syngjandi og dansandi jólatré. Miðasala á Jólapartý Skoppu og Skrítlu er þegar hafin inni á tix.is
Leikhús Tímamót Tónlist Börn og uppeldi Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira