Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 17. ágúst 2026 08:18 Málflutningur ráðherra menntamála gefur tilefni til að efast um skilning hennar á því hverju hún er að breyta. Málflutingur mótsagnakenndur og að nýtt námsmat eigi ekki að koma neinum á óvart. Tekið skal fram að skólastjórnendur fengu kynningu á fyrirhuguðum nýjum matskvarða í liðinni viku. Það er ekki trúverðugt að halda því fram að fólk eigi að þekkja útfærslu sem það hefur aldrei séð áður. Ráðherra fer einfaldlega með rangt mál og getur því miður ekki svarað fyrir innihald málsins = Gult; hæfni ráðherra ábótavant. Gamli kvarðinn – hæfnin ræður Núverandi A–D kvarði í grunnskólum er hæfnimiðaður. Nemendur fá ekki einkunn út frá því hversu mörg prósent þeir fá rétt á prófi heldur er hæfni þeirra metin með hliðsjón af skilgreindum hæfniviðmiðum. A lýsir framúrskarandi hæfni, B góðri hæfni, C sæmilegri hæfni og D því að hæfni sé ábótavant miðað við viðmiðin. Þar að auki eru notaðar millieinkunnirnar B+ og C+. Nýr kvarði – sama hugsun Með fyrirhuguðum talnakvarða breytist þessi grundvallarhugsun lítið. Áfram á að meta hæfni nemandans gagnvart hæfniviðmiðum. Samkvæmt framsetningu nýja kvarðans tákna 9–10 framúrskarandi hæfni, 7–8 að hæfni inn á annað hæfniþrep framhaldsskóla hafi verið náð og 5–6 að hæfni inn á fyrsta hæfniþrep hafi verið náð. Tölurnar 1–3 eiga ekki að vera notaðar í vitnisburði og birtingu lokamats. Hvað breytist í raun? Ekkert Hvað gerðist þá? Ef kennarinn metur áfram sömu eða sambærileg hæfniviðmið, með sömu faglegu nálgun og sömu hugmyndafræði um hæfnimiðað námsmat, þá er ekki verið að umbylta námsmatinu. Það sem breytist fyrst og fremst er hvernig niðurstaðan birtist. Bókstafurinn víkur fyrir tölu. B verður í einhverjum skilningi að 7 eða 8 og A að 9 eða 10, þótt ekki sé hægt að leggja kvarðana fullkomlega einn á einn. Nákvæmari tala – en nákvæmara mat? Tölurnar geta þó skapað tilfinningu fyrir meiri nákvæmni. Við höfum sterkar hugmyndir um hvað 5, 7, 8 eða 10 þýðir enda löng hefð fyrir tölueinkunnum. En 8 í hæfnimiðuðu námsmati er ekki sjálfkrafa það sama og 8 í gamla prófamiðaða kerfinu. Hún þýðir ekki endilega 80% rétt heldur ákveðna stöðu nemandans gagnvart hæfniviðmiðum. Sem skólar eiga að útfæra að sinni námskrá. Sama hæfni – nýjar umbúðir Ef hæfnin sem við metum er sú sama, viðmiðin sambærileg og faglegt mat kennarans byggir á sömu grunni, þá hefur námsmatið sjálft lítið breyst. Umbúðirnar hafa breyst. Bókstafurinn er orðinn að tölu. Breyting sem mátti ekki koma á óvart Ráðherra getur ekki í senn kynnt þetta sem mikilvæga breytingu á námsmati og halda því síðan fram að hún eigi ekki að koma skólasamfélaginu á óvart. Ef efnisleg breyting felst í nýja kerfinu þarf að liggja skýrt fyrir hvað breytist í mati á hæfni nemenda. Ef hæfniviðmiðin, grundvallarhugsunin og framkvæmd matsins standa hins vegar að mestu óbreytt og bókstöfum er fyrst og fremst skipt út fyrir tölur þá er þetta ekki nýtt námsmat heldur ný framsetning á sama mati. Ráðherra þarf einfaldlega að vera skýr um hvort verið sé að breyta námsmatinu sjálfu eða bara tölunni sem birtist á vitnisburðinum. Samráð – hæfni ekki náð Efti stendur að ráðherra fer rangt með, vinnubrögð og málflutningur bendi til skorts á skilningi.Það er ekki samráð að segja fólki að breyting standi til og birta síðan útfærsluna þegar svigrúmið til að hafa áhrif er orðið ekkert. Það er því ansi öfugsnúið að áfellast skólafólk fyrir að hafa ekki kynnt sér efni sem það hafði ekki fengið að sjá. Á meðan er starfsfólk í menntamálaráðuneyti í slökkvistarfi til að reyna tryggja einhverja fagmennsku á ferlinu öllu saman. Gefum þessu einkunnina 5. Og já, kennarar hafa enn ekki fengið kynningu á málinu. Höfundur er kennari og skólastjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Hjálmar Bogi Hafliðason Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar