„Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. ágúst 2026 20:16 Guðni Eiríksson þurfti ekki á ullarpeysunni að halda í dag enda var rjómablíða í Kaplakrika. vísir/anton Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var ósáttur með frammistöðu síns liðs í fyrri hálfleik gegn Breiðabliki í dag. Hann segir að FH-liðið þurfi að draga lærdóm af leiknum. „
Alls konar,“ svaraði Guðni aðspurður hvað hefði getað farið betur í sóknarleik FH í dag en í fyrsta sinn á tímabilinu mistókst liðinu að skora. „Við fengum samt tækifæri til að skora. Það er alveg þannig og til dæmis úrvalsfæri í stöðunni 1-0 í fyrri hálfleik og nokkur í þeim seinni. Mörk breyta leikjum.“ Hjartað sló örugglega ört Guðni segir að taugarnar hafi eflaust verið þandar hjá ungu liði FH í leiknum í dag. Fjölmenni var á vellinum en rúmlega þúsund manns sóttu leikinn í Kaplakrika. „Breiðablik vinnur þennan leik 3-0 og vinnur sanngjarnt. Þær voru miklu betri í fyrri hálfleik. Við vorum á hælunum á löngum köflum. Þær keyrðu bara á okkur, keyrðu yfir okkur og við náðum ekki að svara. Leikmenn FH-liðsins draga mikinn lærdóm af þessu. Þetta eru ungir leikmenn og ég held að þetta sé yngsta liðið í deildinni. Þær þurfa að læra af þessu; að spila svona leiki. Mikil umgjörð og fullt af fólki og hjartað sló örugglega ört hjá mörgum ungum leikmönnum FH-liðsins,“ sagði Guðni. „Það náðist enginn taktur í fyrri hálfleik. Við spiluðum fótboltaleik sem er ólíkur þeim leik sem FH er vant að spila. Við fórum yfir hlutina í hálfleik og ég er miklu ánægðari með seinni hálfleikinn. Hann var miklu betri af hálfu FH. Við komum okkur klárlega í stöður til þess að minnka muninn og ef við hefðum náð að koma inn marki hefði mögulega komið meiri skjálfti komið mögulega í Blikaliðið og við hefðum kannski fundið einhverja lykt. En lyktin kom aldrei af því að þær skora síðan eitthvað ótrúlegt mark, þriðja markið, það slökkti svolítið í okkar vonum. En það er bara áfram gakk. Þessi leikur var upp á þrjú stig og þau fóru til Breiðabliks og hann var ekki að móta eitt né neitt. Hann bara gerði það að verkum að Blikarnir fóru fyrir ofan okkur og það getur bara breyst strax í næsta leik.“ Réðum ekki við ákefð Blikanna Guðna fannst lið FH ekki sýna sitt rétta andlit í fyrri hálfleik. Breiðablik var 0-2 yfir að honum loknum. „Ég er ósáttur við hvernig við förum inn í leikinn. Fyrri hálfleikurinn var skrítinn af okkar hálfu. Við réðum ekki við ákefð Blikanna. Við fórum að beita einhverjum löngum boltum og vorum ekki að tengja saman sendingar. FH-liðið er þannig lið að það spilar sig í gegnum andstæðinginn sem það gerði oft á tíðum í seinni hálfleik. En það bara datt allur botn úr þessu fannst mér í fyrri hálfleik, liðið var ólíkt sjálfu sér og alls ekki ósanngjarnt undir í fyrri hálfleik,“ sagði Guðni. „Það var óþarfi að fá þetta mark á sig þarna á 40. mínútu eða hvenær sem seinna markið var. Eftir einhvern langan bolta og í gegnum allan pakkann og bara bang og mark. En áfram gakk og allt það. Þessi leikur mótar okkur ekki en það er eins gott að við lærum af honum. Það er það sem við þurfum að gera; læra að spila leiki af þessari stærðargráðu.“
Besta deild kvenna FH Breiðablik Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Enski boltinn Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira