Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Sigurgeir Þorkelsson skrifar 13. ágúst 2026 16:32 Sjö þúsund gestir sóttu sólmyrkvahátíð Bjarkar á Víðistaðatúni. Samsett Tónlistarhátíðin Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar og Smekkleysu fór fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í gær. Kona sem býr í nágrenni við Víðistaðatún lýsir vonbrigðum og reiði yfir tónlistarhátíðinni. Hún hafi rofið dýrmæta kyrrð sem átti að ríkja á degi sem íbúar hverfisins höfðu leyft sér að hlakka til árum saman. Gestir hátíðarinnar voru sjö þúsund og götum í kring um túnið var lokað. Tónleikarnir hófust klukkan 14 og lauk klukkan 22. „Ég hélt á tímabili að rúðurnar myndu brotna hjá mér,“ lýsir íbúi við Hraunbrún, götu sem snýr beint að túninu. Í tilkynningu á síðu Hafnarfjarðarbæjar um tónlistarhátíðina segir: „Já, við gerum þetta saman og búum til einstaka upplifun!“ Áskorun bæjarins virðist ekki hafa náð í gegn. Gestir sóttu miða og varning áður en haldið var á tónleikasvæðið. Vísir/Sigurgeir Heiðdís Traustadóttir, sem býr í nálægri götu, lýsir sterkum vonbrigðum og reiði í kjölfar atburðarins. „Ég vona innilega að þetta gerist aldrei framar,“ segir Heiðdís. „Maður fær þennan tíma ekkert til baka.“ Um einstakan viðburð var að ræða þar sem almyrkvi verður ekki á sólu á Íslandi næstu 170 árin. Heiðdís segist reið út í viðburðarhaldara, Smekkleysu, Björk og Hafnarfjarðarbæ. „Ég var búin að hlakka svo til, ég var búin að bíða eftir þessum sólmyrkva í mörg ár,“ segir Heiðdís sár. „Þetta var bara rifið af manni.“ Þessi fallegu hús snúa að Víðistaðatúni. Stórum steinstöplum hafði verið komið fyrir við túnið til að hindra óviðkomandi umferð. Vísir/Sigurgeir Hávaðinn frá Víðistaðatúni eyðilagði upplifun Heiðdísar. „Það var bara ekkert hægt að vera utandyra,“ segir hún. Oft séu haldnir viðburðir á túninu en hún hafi aldrei upplifað neitt í líkingu við gærdaginn. „Það eru oft viðburðir hérna úti á túni og maður heyrir alveg óm, en ekkert í líkingu við þetta. Maður heyrir kannski ef maður opnar glugga en þetta var eins og jörðin nötraði undir manni.“ Í myndbandinu hér að neðan má heyra tóndæmi úr framkomu Bjarkar. @aftermidnightmag Björk performing during the eclipse in Iceland 📹: @lorina.mp4 #bjork #echolalia ♬ original sound - AFTERMIDNIGHT Gagnrýnir yfirvöld Heiðdís er sérstaklega gagnrýnin á yfirvöld þar sem tilmælum hafði verið beint til fólks í aðdraganda sólmyrkvans að halda sig heima við til að bæta ekki á álag á innviði vegna myrkvans. Heiðdís segir sögu af heimili í götunni þar sem mikil tilhlökkun ríkti fyrir deginum. Þar var búið að leigja tjald fyrir tilefnið og halda boð. Að sögn Heiðdísar flúðu boðsgestir fljótt inn vegna hávaðans. Það nægði þó ekki til og að endingu yfirgáfu þau heimilið alfarið til að upplifa almyrkvann í betra næði. Sýnin sem blasti síðan við Heiðdísi í morgun þegar hún fór út með hundinn var ekki fögur en einhver hátíðargestanna hafði kastað upp á göngustíginn. Heiðdís vildi ekki fara með hundinn upp á Víðistaðatún þar sem hún vissi ekki hvað myndi bíða þeirra þar. Talið var niður að sólmyrkvanum á stórum skjám. Vísir/Sigurgeir Heitar umræður meðal íbúa á Facebook-hóp Heitar umræður mynduðust á Facebook-hópnum Norðurbærinn minn – íbúar í Norðurbæ í Hafnarfirði í gær. „Viðbjóðsleg frekja að halda þetta þarna!“ Segir einn nafnlaus notandi. Spennan jókst eftir því sem almyrkvinn færðist nær. Vísir/Sigurgeir „Ég hef aldrei verið neinn sérlegur aðdáandi Bjarkar en núna hata ég hana,“ segir notandinn Helga Sjöfn. Á forsíðumynd hennar stendur „Stöndum saman gegn hatri.“ Fréttastofa tók stikkprufur á íbúum nokkurra húsa sem liggja að Víðistaðatúni. Íbúar höfðu ýmist ekki verið heimavið eða vildu ekki tjá sig undir nafni. „Þetta var mjög vel skipulagt, ég sá það alveg,“ lýsir einn íbúi, „… en þetta voru meiri læti en tónlist. Ég var fegin þegar þetta var búið.“ Stigin voru létt spor á tónlistarhátíð Bjarkar og Smekkleysu.Vísir/Sigurgeir Skipuleggjendur ánægðir Skipulagning hátíðarinnar var í höndum Garcia Events. Í tilkynningu á síðu fyrirtækisins kemur fram að íbúapössum hafi verið dreift í hús á lokunarsvæðinu daginn fyrir sólmyrkvann. Egill Ástráðsson, einn skipuleggjenda, brást við kvörtunum í skriflegu svari til fréttastofu. „Echolalia var frábær viðburður í alla staði þar sem gífurlega fjölbreyttur hópur fólks víðs vegar að úr heiminum átti saman einstaka stund á Víðistaðatúni.“ Nóg var af mat og drykk á svæðinu, sem og sætum við borð. Vísir/Sigurgeir Samheldinn hópur listafólks, yfirvalda, skipuleggjenda og fleiri hafi tryggt örugga og jákvæða upplifun sem lengi verði í minnum höfð. „Tónleikunum lauk klukkan 22 og rýming svæðisins gekk eins og best verður á kosið. Skipuleggjendur vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til íbúa í Hafnarfirði fyrir frábært samstarf, samtöl og þau fjölmörgu hvatningarorð sem frá þeim hafa borist í tengslum við viðburðinn. Víðistaðatún er frábær samkomustaður og Hafnarfjörður er einstakt samfélag,“ segir Egill í skriflegu svari sínu. Fjöldi fólks var samankominn á Víðistaðatúni til að berja sólmyrkvann augum.Vísir/Sigurgeir Þess ber að geta að algjör þögn ríkti í nokkrar mínútur fyrir sólmyrkvann og á meðan á honum stóð. „Var það ógleymanleg stund fyrir gesti rétt eins og flestalla aðra sem fylgdust með almyrkvanum í gær,“ segir skipuleggandinn Egill. Strax og mesta myrkrinu létti steig Björk á svið, undir dyn lófataks og tónaljóðs Richards Strauss, Also Sprach Zarathustra (Op. 30). Björk þeytti skífum í um fimmtíu mínútur en næsta atriði tók þá við og hélt stuðið áfram þangað til tíu um kvöldið. Viðburðahaldarar báðu um að skriflegt svar þeirra yrði birt í heild sinni og er hér með orðið við því. Echolalia var frábær viðburður í alla staði þar sem gífurlega fjölbreyttur hópur fólks víðsvegar að úr heiminum átti saman einstaka stund á Víðistaðatúni. Samheldinn hópur listafólks, skipuleggjenda, tæknifólks, öryggisgæslu, starfsfólks, sjálfboðaliða, viðbragðsaðila, bæjaryfirvalda og nágranna lyftu grettistaki við að tryggja örugga og jákvæða upplifun fyrir viðstadda sem verður lengi í minnum höfð. Stendur þar upp úr almyrkvinn sjálfur, en rétt fyrir, á meðan og rétt eftir að almyrkvanum lauk var tónlistin stöðvuð og ljós slökkt svo viðstaddir og aðrir í nágrenninu gætu notið hans til fulls. Var það ógleymanlegt stund fyrir gesti rétt og eins flest alla aðra sem fylgdust með almyrkvanum í gær. Tónleikunum lauk klukkan 22 og rýming svæðisins gekk eins og best verður á kosið. Skipuleggjendur vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til íbúa í Hafnarfirði fyrir frábært samstarf, samtöl og þau fjölmörgu hvatningarorð sem frá þeim hafa borist í tengslum við viðburðinn. Víðistaðatún er frábær samkomustaður og Hafnarfjörður er einstakt samfélag. Almyrkvi 12. ágúst 2026 Hafnarfjörður Tónlist Björk Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Viðburðahaldarar báðu um að skriflegt svar þeirra yrði birt í heild sinni og er hér með orðið við því. Echolalia var frábær viðburður í alla staði þar sem gífurlega fjölbreyttur hópur fólks víðsvegar að úr heiminum átti saman einstaka stund á Víðistaðatúni. Samheldinn hópur listafólks, skipuleggjenda, tæknifólks, öryggisgæslu, starfsfólks, sjálfboðaliða, viðbragðsaðila, bæjaryfirvalda og nágranna lyftu grettistaki við að tryggja örugga og jákvæða upplifun fyrir viðstadda sem verður lengi í minnum höfð. Stendur þar upp úr almyrkvinn sjálfur, en rétt fyrir, á meðan og rétt eftir að almyrkvanum lauk var tónlistin stöðvuð og ljós slökkt svo viðstaddir og aðrir í nágrenninu gætu notið hans til fulls. Var það ógleymanlegt stund fyrir gesti rétt og eins flest alla aðra sem fylgdust með almyrkvanum í gær. Tónleikunum lauk klukkan 22 og rýming svæðisins gekk eins og best verður á kosið. Skipuleggjendur vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til íbúa í Hafnarfirði fyrir frábært samstarf, samtöl og þau fjölmörgu hvatningarorð sem frá þeim hafa borist í tengslum við viðburðinn. Víðistaðatún er frábær samkomustaður og Hafnarfjörður er einstakt samfélag.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Hafnarfjörður Tónlist Björk Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira