Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson skrifar 13. ágúst 2026 12:16 Það er eðlilegt að gera ríkar kröfur til fyrirtækja sem ætla að hefja veitingarekstur. Brunavarnir, heilbrigðiskröfur, húsnæði og önnur skilyrði þurfa að vera í lagi. Fyrirtæki eiga ekki sjálfkrafa rétt á því leyfi sem þau sækja um. En þau eiga rétt á skýrum svörum og því að mál þeirra séu afgreidd með skilvirkum og fyrirsjáanlegum hætti. Þess vegna er áhugavert að skoða mál veitingastaðar að Vesturgötu 3 í Reykjavík. Þar voru aðaluppdrættir lagðir inn 20. maí. Þegar ítarleg greinargerð um málið var tekin saman 11. ágúst voru liðnir 83 dagar. Að baki málinu lágu þá 179 tölvupóstar í 82 samskiptaþráðum. Tölurnar segja ekki alla söguna. Umsækjandi og ráðgjafar hans þurftu að svara athugasemdum og breyta gögnum. Það sem vekur hins vegar athygli er að athugasemdir frá fjórum mismunandi einingum bárust á mismunandi tímum. Gögn voru leiðrétt og lögð inn að nýju, beðið eftir næstu yfirferð og síðan komu frekari athugasemdir sem kölluðu á nýja vinnu og endurinnlögn. Þarna er ástæða til að spyrja hvort við séum að horfa á eðlilega og skilvirka stjórnsýslu. Ekki vegna þess að 83 dagar séu einhver algild mörk, heldur vegna þess að 179 tölvupóstar og 82 samskiptaþræðir vegna einnar umsóknar gefa tilefni til að skoða hvort ferlið sé orðið óþarflega flókið. Vesturgata 3 er heldur ekki eina málið sem hefur komið inn á borð SVEIT. Ítrekuð alvarleg tilfelli SEL, nýr veitingastaður Þráins Freys Vigfússonar og samstarfsfólks hans, opnaði síðar en upphaflega hafði verið stefnt að. Hamborgarafabrikkan beið samkvæmt upplýsingum SVEIT í um þrjá mánuði eftir að geta opnað við Tryggvagötu, í húsnæði þar seldir hafa verið hamborgarar alveg frá því á síðustu öld. Síðan er það mál Víkingapylsna við Laugaveg 54. Samkvæmt upplýsingum sem lagðar hafa verið fyrir SVEIT sóttu rekstraraðilarnir um leyfi fyrir söluturn en fengu höfnun vegna leyfis til að reka veitingastað, sem þeir segjast ekki hafa sótt um. Þeir hafa síðan reynt að fá málið leiðrétt og sú bið er nú komin í um eitt ár. Málin eru ólík og ekki rétt að setja þau öll undir sama hatt. Það kann líka vel að vera að í einhverjum þeirra séu gildar ástæður fyrir því að ekki sé hægt að veita það leyfi sem sótt er um. Eldri leyfi, skipulag, notkun húsnæðis eða önnur skilyrði geta einfaldlega staðið í vegi fyrir því sem rekstraraðili vill gera. En þá þarf líka að segja það. Skýrt og fljótt. Ákall um hraðaði afgreiðslu Það er jafn mikilvægt að fá skýrt nei og skýrt já. Ef fyrir liggur skilyrði sem kemur í veg fyrir leyfisveitingu á umsækjandi að fá að vita það eins snemma í ferlinu og mögulegt er. Þá getur hann brugðist við, breytt áformum sínum eða ákveðið að fjárfesta ekki frekar í verkefninu. Það sem er erfiðast fyrir fyrirtæki er óvissan. Að vita ekki hvort leyfið sé handan við hornið, hvort eitthvað vanti eða hvort grundvallaratriði standi yfirhöfuð í vegi fyrir því að starfsemin geti hafist. Auðvitað ber fyrirtækið ábyrgð á sinni umsókn. Það þarf að leggja fram fullnægjandi gögn, svara athugasemdum og gera nauðsynlegar breytingar. En á fyrirtækið líka að þurfa að fylgja umsókninni eftir milli mismunandi eininga, kanna hvort gögn hafi borist, hvaða athugasemdir séu enn opnar og hvenær málið verði tekið fyrir? Það bera allir ábyrgð Fyrirtæki eiga að bera ábyrgð á umsóknum sínum en þau eiga ekki að þurfa að vera verkefnastjórar stjórnsýslunnar. Margra mánaða bið og endurtekin eftirgrennslan er heldur ekki bara álag á umsækjandann. Hún hlýtur líka að skapa óþarfa vinnu innan stjórnsýslunnar sjálfrar. Hver tölvupóstur þarf svar, hver stöðufyrirspurn tekur tíma og þegar upplýsingar liggja dreifðar milli margra aðila verður ferlið þyngra fyrir alla. Á meðan heldur kostnaður fyrirtækisins áfram. Leiga fellur til, fjármagn ber vexti og reikningar hönnuða og verktaka koma til greiðslu án þess að fyrirtækið geti opnað dyrnar og aflað tekna. Málshraði hins opinbera er því raunverulegur hluti af rekstrarumhverfi fyrirtækja. SVEIT er ekki að kalla eftir því að slakað verði á reglum eða að allar umsóknir eigi að fá jákvæða afgreiðslu. Við erum að kalla eftir skýrri og tímanlegri afgreiðslu — hvort sem svarið er já, nei eða að tiltekin gögn vanti. Í grunninn ætti fyrirtæki að geta fengið svör við einföldum spurningum: Hvar er málið statt? Hvað vantar? Er eitthvað sem kemur í veg fyrir leyfisveitingu? Og hvenær má vænta niðurstöðu? Vesturgata 3 gefur okkur gott tilefni til þessarar umræðu. Þegar eitt byggingarleyfismál er komið í 83 daga, 179 tölvupósta og 82 samskiptaþræði er sanngjarnt að spyrja hvort þetta sé ásættanleg stjórnsýsla og hvort hægt sé að gera betur. Það er ekki ákall um minni kröfur. Það er ákall um skýrari, hraðari og betri stjórnsýslu. Höfundur er framkvæmdastjóri SVEIT. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun