Tala látinna komin yfir hundrað Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 18:53 Talið er að fjöldi fólks sé fastur undir rústum bygginga sem hrundu í skjálftanum í borginni Calí í Kólumbíu. EPA/ERNESTO GUZMAN JR Enn er verið að meta manntjón vegna jarðskjálfta af stærðinni 7,4 sem skók vestanverða Kólumbíu í dag. Tala látinna er komin yfir hundrað að sögn forseta landsins.
Upptök skjálftans voru á rúmlega hundrað kílómetra dýpi undir San José del Palmar í Chocó-héraði, um fjögur hundruð kílómetra vestur af kólumbísku höfuðborginni Bogotá, samkvæmt bandarísku og kólumbísku jarðfræðistofnunum. Björgunaraðgerðir eru hafnar til þess að ná fólki upp úr rústum bygginga sem hrundu í skjálftanum. Abelardo De La Espriella, forseti Kólumbíu, segir minnst 111 hafa látist í skjálftanum og 87 hafa slasast. De La Espriella tók við embætti forseta landsins í síðustu viku. Kólumbíska jarðfræðistofnunin segir jarðskjálftann þann stærsta þar í áratug og fjöldi mannvirkja hafa hrunið. Enn eru fimm flugvellir lokaðir vegna skemmda og öllu skólahaldi hefur verið aflýst í Manizales, höfuðborg Caldas-héraðs. Fjöldi erlendra ráðamanna hefur heitið stuðningi við landið. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt að Bandaríkjastjórn muni fylgjast grannt með þróun mála og sé reiðubúin að veita aðstoð og Daniel Noboa Azin, forseti Ekvador, sagðist ætla að senda liðsauka til aðstoðar við björgunaraðgerðir.
Eldgos og jarðhræringar Kólumbía Náttúruhamfarir Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Sjá meira