Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. ágúst 2026 14:46 Tom Holland og Matt Damon eru í fararbroddi tveggja vinsælustu kvikmynda ársins, Spider-Man: Brand New Day og The Odyssey. Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmannin, Spider-Man: Brand New Day, heldur áfram sigurgöngu sinni, hefur halað inn 1,6 milljarði dala og stefnir hraðbyri á að verða ein af aðsóknarmestu myndum sögunnar. Ódysseifur Christophers Nolan er sömuleiðis enn á siglingu, fór um helgina yfir milljarð dala-múrinn og er orðin aðsóknarmesta mynd leikstjórans frá upphafi.
Spider-Man: Brand New Day, fjórða myndin um Köngulóarmanninn með Tom Holland í aðalhlutverki, var frumsýnd fimmtudaginn 27. júlí og átti þá aðsóknarmestu opnunarhelgi frá upphafi. Sjá einnig: Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Köngulóarmannsæðið hefur haldið áfram síðustu vikuna, myndin halaði inn rúmum 380 milljónum dala á heimsvísu um helgina og trónir á toppnum yfir vinsælustu myndir heims. Alls hefur kvikmyndin halað inn 1,67 milljarði dala, mun vafalaust fara yfir tvo milljarða dala næstu helgi og komast á topplistann yfir fimm aðsóknarmestu myndir sögunnar áður en langt um líður. Spurningin er bara hvort hún nái að ógna efstu þremur sætunum sem eru skipuð Avatar (2009), Avengers: Endgame (2019) og Avatar: The Way of Water (2022). Takist henni það gæti hún orðið fyrsta kvikmyndin sem halar inn meira en þremur milljörðum í kvikmyndahúsum. Köngulóarmaðurinn er ekki sá eini sem hefur trekkt fólk í kvikmyndahús því The Odyssey í leikstjórn Christophers Nolan, sem var frumsýnd tveimur vikum fyrr, nýtur enn vinsælda. Ódysseifskviðan fór yfir milljarð dala-múrinn um helgina, hefur sankað að sér hálfum milljarði dala í Bandaríkjunum og 1,1 milljarði á heimsvísu. Þar með fór myndin fram úr tveimur vinsælustu kvikmyndum Christophers Nolan, The Dark Knight Rises (2012) sem endaði með 1,08 milljarð dala í miðasölu og The Dark Knight (2009) sem endaði með 1,008 milljarð dala. Gríska epíkin er þegar orðin aðsóknarmesta IMAX-kvikmynd sögunnar og eru miðar á myndina í IMAX-sölum víða uppseldir fram í miðjan september. Þar að auki hefur kvikmyndin ekki enn verið sýnd í Kína sem er næststærsti bíóhúsamarkaður heims. Vinsældir kvikmyndanna tveggja hafa þó gert að verkum að aðrar myndir sem hafa verið frumsýndar nýverið hafa fallið í skuggann. Ef horft er til væntanlegra kvikmynda er ekki margt sem getur skákað risunum tveimur, það er helst að Hvolpasveitin: Risaeðlumyndin geti stolið áhorfendum af Köngulóarmanninum.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Janosch er allur Menning Alsæla á Akranesi Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Fleiri fréttir Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira