Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir, Jakob Tryggvason, Andri Reyr Haraldsson, Eiður Stefánsson, Gunnar Sigurðsson og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifa 10. ágúst 2026 09:03 Á meðan athygli stjórnmálamanna og kjósenda beinist að þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB tikkar klukkan á vinnumarkaði. Þann 27. ágúst nk. verður vísitala neysluverðs birt og ársverðbólga mun mælast svo há að forsendur kjarasamninga bresta. Mánuðum saman hefur verkalýðshreyfingin kallað eftir aðgerðum og viðbrögðum frá bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum, en án árangurs. Allt hækkar nema laun Vel hefði mátt fyrirbyggja þá stöðu sem nú er komin upp. Hefðu stærri fyrirtæki, sem móta verð í landinu, staðið við fyrirheit um að halda aftur af verðhækkunum væri verðbólgan lægri en raun ber vitni. Þess í stað hafa þau aukið hagnað sinn á verðbólgutímum, ekki vegna þess að þau eiga ekki annarra kosta völ heldur vegna þess að þau geta það. Að sama skapi hafa bæði ríki og sveitarfélög hækkað gjaldskrár langt úr hófi fram og í stað þess að verja barnafólk, líkt og sveitarfélögin lofuðu, hefur verið þrengt að barnafólki með hærri gjöldum og skerðingu á þjónustu. Nauðsynjar á borð við rafmagn og hita hafa hækkað svo mikið að þrátt fyrir að þetta séu ekki stærstu kostnaðarliðir heimilanna hafa hækkanirnar tilfinnanleg áhrif á verðbólguna. Þetta allt, ásamt aðgerðaleysi í húsnæðismálum, veldur því að forsendur kjarasamninga eru að bresta. Kreppuverðbólga í smíðum Hávaxtastefna Seðlabankans hefur enn fremur verið sem olía á eld og í stað þess að ná niður verðbólgu veldur hún nú auknu atvinnuleysi, samhliða því að setja allar byrðarnar af erfiðu efnahagsumhverfi á herðar skuldara og leigjenda. Þessi vítahringur er smám saman að skapa kreppuverðbólgu, sem getur verið erfitt að vinda ofan af. Við, sem undir þetta ritum og erum í forsvari fyrir um 40% launafólks á almennum vinnumarkaði, höfum verið skýr á því að ef stjórnvöld og atvinnurekendur axla enga ábyrgð á stöðunni er okkur nauðugur einn kostur að segja upp kjarasamningum og fara fram á leiðréttingu launa til þess að halda í við verðbólgu og vexti. Að sama skapi þarf að leiðrétta þá kjaraskerðingu sem barnafólk hefur sérstaklega orðið fyrir, á tíma sem átti að standa vörð um þeirra hag. Fugl í hendi, ekki skógi Við höfum bundið vonir við að þríhliða samtal milli stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar myndi skila árangri áður en til forsendubrests kæmi, en til þess þarf bæði pólitískan vilja og framkvæmdavilja. Launafólk getur ekki eitt setið að árum og tekist á við efnahagsástand sem það stofnaði ekki til. Núgildandi kjarasamningar voru gerðir á grundvelli loforða sem áttu að lækka verðbólgu og vexti. Þau loforð hafa verið þverbrotin og kjarasamningar munu ekki halda á grundvelli sambærilegra loforða. Nú þarf fugl í hendi, ekki í skógi. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Jakob Tryggvason, formaður RSÍ. Andri Reyr Haraldsson, varaformaður RSÍ og formaður FÍR. Eiður Stefánsson, formaður LÍV. Gunnar Sigurðsson, formaður VM. Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Gunnarsdóttir Kjaramál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar