Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2026 18:09 Dagbjartur er meistari annað árið í röð. Mynd/GSÍ Dagbjartur Sigurbrandsson er Íslandsmeistari karla í golfi annað árið í röð eftir að hafa haft algjöra yfirburði allt mótið á Korpúlfstaðastaðavelli.
Dagbjartur lék hring dagsins á pari en það varð aldrei spenna í baráttunni um titilinn. Hann var með fimm högga forystu fyrir daginn og þrátt fyrir ljómandi fína spilamennsku Arons Emils Gunnarssonar stærstan part færðist aldrei spenna í leikinn. Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á hring dagsins og stóð uppi sem sigurvegari á tíu höggum undir pari. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss hafnaði í öðru sæti, fjórum höggum á eftir Dagbjarti, eftir að hafa farið hring dagsins á tveimur undir pari vallar og var alls á sex undir. Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð í þriðja sæti eftir að hafa verið á fjórum undir pari í dag en hann var á þremur undir pari í heildina, eftir að hafa verið á einu yfir pari fyrir hring dagsins. Tómas Eiríksson Hjaltested, GR, varð fjórði á tveimur undir pari og hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason sem setti vallarmet á þriðja hringnum í gær varð fimmti á pari, eftir að hafa farið hring dagsins á þremur yfir pari vallar. Dagbjartur er úr Golfklúbbi Reykjavíkur og vann titilinn á heimavelli þetta árið og varði sinn fyrsta titil, sem hann vann í fyrra. Guðrún Brá Björgvinsdóttir varði einnig titil sinn í kvennaflokki en þetta er í fyrsta sinn síðan 1992 sem sigurvegarinn í bæði karla- og kvennaflokki ver titil sinn. Úlfar Jónsson og Karen Sævarsdóttir unnu titilinn fjögur ár í röð frá 1989 til 1992. Karen vann hann raunar átta ár í röð, frá 1989 til 1996.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira