Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2026 17:10 Guðrún Brá Björgvinsdóttir er Íslandsmeistari í fimmta sinn. Getty/Charles McQuillan Guðrún Brá Björgvinsdóttir er Íslandsmeistari kvenna í golfi árið 2026. Hún vinnur titilinn annað árið í röð, í fimmta sinn í heildina og slær þar með föður sínum Björgvin Sigurbergssyni við í titlafjölda.
Guðrún Brá mætti til leiks í dag með þriggja högga forskot á Elsu Maren Steinarsdóttur og fjórum höggum á undan Ragnhildi Kristinsdóttur. Það færðist spenna í leikinn þegar Guðrún fékk skolla á fyrstu braut, en hún fékk örn á sjöundu og svo annan skolla á þeirri níundu. Ragnhildur sótti hressilega að henni með þremur fuglum á fyrstu níu og aðeins höggi munaði þá á þeim. Ragnhildi fataðist hins vegar flugið á síðari níu og að endingu var spennan ekkert gríðarleg þar sem Guðrún Brá spilaði afar stöðugan leik í dag. Hún fékk einn fugl og einn skolla á seinni níu og par á síðustu sjö brautum vallarsins. Guðrún Brá lauk leik á einu höggi undir pari, fimm höggum á undan Elsu Maren sem varð önnur á fjórum yfir pari og sjö á undan Ragnhildi sem varð þriðja á sex yfir pari. Það hefur verið yfirlýst markmið Guðrúnar Brár að slá föður sínum, Björgvin Sigurbergssyni, við í titlafjölda en hann vann á sínum ferli fjóra Íslandsmeistaratitla; 1995, 1999, 2000 og 2007. Guðrún Brá er nú Íslandsmeistari í fimmta sinn og annað árið í röð. Hún varnn þrjú ár í röð milli 2018 og 2020, fjórða titilinn 2025 og þann fimmta í dag.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira