Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi Aron Guðmundsson skrifar 9. ágúst 2026 14:44 Guðrún Brá er með forystuna á Íslandsmótinu en hefur verið að finna fyrir pressunni frá öðrum kylfingum Mynd/GSÍ Aðeins einu höggi munar á ríkjandi Íslandsmeistaranum Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og Ragnhildi Kristinsdóttur þegar báðar hafa lokið fyrri níu á lokahring Íslandsmótsins í golfi. Þá er Elsa Maren Steinarsdóttir skammt undan.
Spilað er á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík og hefur Guðrún Brá, fjórfaldur Íslandsmeistari, verið í forystunni síðan á öðrum hring mótsins. Hún kom inn í lokadaginn með þriggja högga forskot sem að stendur nú í að eins einu höggi. Ragnhildur Kristinsdóttir, úr Golfklúbbi Reykjavíkur, var fjórum höggum á eftir Guðrúnu fyrir lokahringinn en hefur verið að spila fantavel á fyrri níu holum vallarins í dag. Guðrún Brá fékk tvo skolla á fyrri níu en líka einn örn sem sér til þess að hún er nú á einu höggi undir pari á heildina litið. Ragnhildur setti á sama tíma niður þrjá fugla og er á pari. Einu höggi á eftir Guðrúnu Brá. Þá er Elsa Maren á einu höggi yfir pari og er því sem stendur þriggja kylfinga einvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Þá er Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur með fjögurra högga forystu á tíu höggum undir pari þegar sex holur eru búnar á lokahringnum hjá síðasta teighóp. Aron Emil er í öðru sæti og hefur unnið upp tvö högg af sex högga forystunni sem Dagbjartur var með fyrir lokahringinn.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira