16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2026 20:31 Hinn 16 ára Hjalti Kristján Hjaltason, GKG, setti nýtt vallarmet á nýjum Korpúlfsstaðavelli í dag. Mynd/GSÍ Hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason, kylfingur úr GKG, setti vallarmet á nýjum Korpúlfsstaðavelli á Íslandsmótinu í golfi í dag. Hann verður í ráshópi með efstu kylfingum á morgun.
Eftir að 15 ára kylfingur, Halldór Jóhannsson úr Keili, hafði leikið best allra á Korpunni í gær sló annar 16 ára honum við í dag. Nýr Korpúlfsstaðavöllur blasti við keppendum mótsins þar sem ákveðnar brautir eru lengri en áður var. Þrátt fyrir vindasamt veður og erfiðar aðstæður sem komu öðrum kylfingum í koll lék hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason úr GKG við hvurn sinn fingur. Hjalti Kristján tapaði ekki höggi í dag, fékk fjóra fugla; á sjöttu, níundu, elleftu og fimmtándu braut og fékk þá örn á sjöundu braut. Hann lék því á sex undir pari vallar sem er vallarmet á nýjum Korpúlfsstaðavelli. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf) Þökk sé árangrinum er Hjalti Kristján í þriðja sæti mótsins fyrir lokahringinn á þremur höggum undir pari. Hann mun því vera í holli með þeim tveimur efstu, Aroni Emil Gunnarssyni og Dagbjarti Sigurbrandssyni á lokahringnum á morgun. Dagbjartur er með afgerandi forystu, á tíu höggum undir pari, sem höggum á undan Aroni Emil sem er höggi á undan Hjalta Kristjáni.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira