Dagbjartur eykur forystuna Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2026 17:36 Dagbjartur er með afgerandi forystu fyrir lokahringinn og getur varið titilinn frá því í fyrra. Mynd/GSÍ Dagbjartur Sigurbrandsson jók forystu sína fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Hann lék hring dagsins á tveimur undir pari og er með sex högga forystu.
Eftir bleytu fyrstu tvo dagana, sem sjá mátti þó enn á vellinum, blasti önnur áskorun við í dag en töluverður vindur setti svip sinn á þriðja hringinn. Dagbjartur var með fimm högga forystu eftir fyrstu tvo hringi mótsins en hann var á átta undir pari fyrir þriðja hringinn í dag. Hann fékk skolla á annarri braut en í kjölfarið komu þrír fuglar og einn örn, sem fékkst á sjöundu brautinni. Hann gaf aðeins eftir á seinni hluta hringsins, en síðasti fuglinn kom á elleftu braut vallar. Dagbjartur tapaði höggi og fékk skolla á bæði 15. og 16. braut og lauk hringnum á tveimur höggum undir pari, 69 höggum, eftir par á síðustu tveimur holunum. Með spilamennsku dagsins jók Dagbjartur forystu sína á toppnum. Hann er á tíu undir pari og forystan fór úr fimm höggum í sex högg fyrir lokahringinn. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss lék glimrandi vel í dag, fékk fjóra fugla og fór aðrar holur á pari, það skilaði honum upp í annað sætið á fjórum undir pari. Í þriðja sæti er Hjalti Kristján Hjaltason úr GKG sem lék enn betur, á sex undir pari þökk sé fjórum fuglum og einum erni. Hann er á þremur undir pari í heildina. Næstur kemur Tómas Eiríksson Hjaltested úr GR á tveimur undir pari en hann lék á einu höggi yfir pari í dag. Markús Marelsson, Keili, Aron Snær Júlíusson, GKG, og Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, eru jafnir í sjötta til áttunda sæti á tveimur yfir pari vallar.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira