Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Aron Guðmundsson skrifar 8. ágúst 2026 12:00 Ríkjandi Íslandsmeistararnir eru í forystunni á Íslandsmótinu í golfi bæði karla og kvennamegin. Aðstæður verða öðruvísi krefjandi fyrir kylfinga í dag. MYND: GSÍ Ríkjandi Íslandsmeistararnir í golfi eru í góðri stöðu nú þegar að Íslandsmótið á Korpúlfsstaðavelli er hálfnað. Aðstæður fyrir kylfinga verða krefjandi í dag en ólíkar þeim sem hafa verið uppi á fyrri hluta mótsins að mati Þorsteins Hallgrímssonar, golfsérfræðings.
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er kominn með fimm högga forystu eftir að hafa leikið fyrstu tvo daga Íslandsmótsins á átta höggum undir pari. Guðrún Brá lék annan hringinn á tveimur höggum undir pari og lék langbest allra kvenna í gær en engin önnur kona var á undir pari á vellinum á þessum öðrum hring. Guðrún náði með því toppsætinu af Elsu Maren Steinarsdóttur úr Golfklúbbnum Leyni sem var með forystuna eftir fyrsta hringinn. „Spilamennskan er búin að vera mjög góð á mótinu,“ segir Þorsteinn Hallgrímsson, golfsérfræðingur í samtali við Vísi. „Það kemur svo sem ekkert á óvart að þau tvö séu þarna í efstu sætunum, ríkjandi Íslandsmeistarar og hafa verið að leika vel. Það sem einkennir þetta Íslandsmót er að völlurinn er frábærlega uppsettur. Ég er ekki að segja að það hafi ekki verið raunin í gegnum tíðina. En hann er mjög krefjandi. Hann sigtar mjög vel út kylfinga sem eru að leika virkilega vel og þá sem eru ekki alveg eins vel á boltanum. Við erum að sjá Dagbjart og Guðrúnu Brá vera að leika frábært golf. Ásamt fleiri kylfingum að sjálfsögðu.“ Fyrstu tveir keppnisdagar mótsins einkenndust af mikilli rigningu. Nú hefur stytt upp í Reykjavík en sterkir vindar gætu sett svip sinn á mótið í dag. Skor efstu kylfinga getur talist mjög gott miðað við aðstæður. „Völlurinn er settur upp mjög erfiður og er mjög krefjandi. Sem gerir þetta enn þá betra því aðstæðurnar eru ekki gefnar, veðrið ekki búið að vera gott. Stefnir í að verði þónokkur vindur í dag. Aðstæður verða öðruvísi krefjandi í dag. Það verður þurrt en meiri vindur líklega. Það reynir svo sannarlega á kylfingana á vellinum í dag.“ Efstu kylfingar í bæði karla- og kvennaflokki halda út í þriðju hringi sína núna á næsta rúma klukkutímanum og óhætt að mæla með því að áhugafólk um golf geri sér ferð á Korpúlfsstaðavöll og fylgist með þessu stærsta og virtasta móti Íslands í golfinu.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira