Golf

Dag­bjartur á­fram í frá­bærum gír í titilvörninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er að spila frábærlega á heimavelli.
Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er að spila frábærlega á heimavelli. GSÍmyndir

Heimamaðurinn og ríkjandi Íslandsmeistari í golfi fylgdi eftir frábærum fyrsta degi með öðrum góðum hring í dag í rigningunni á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli.

Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er kominn með fimm högga forystu eftir að hafa leikið fyrstu tvo daga Íslandsmótsins á átta höggum undir pari.

Hann lék annan daginn á 68 höggum eða þremur höggum undir pari, fékk fimm fugla og tvo skolla.

Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur deila öðru sætinu á þremur höggum undir pari samanlagt.

Kristján Karl lék á einu höggi undir pari í dag en Tómas kláraði hringinn á pari. Kristján Karl fékk reyndar tvo skolla á fyrstu þremur holunum en kom sterkur til baka eftir það. Tómas var með þrjá fugla á fyrstu sjö holunum en fékk svo þrjá skolla á restinni af hringnum.

Sigurður Bjarki Blumenstein úr Golfklúbbi Reykjavíkur er fjórði á tveimur höggum undir pari en hann lék á pari í dag. Sigurður Bjarki fékk tvöfaldan skolla á tólftu og skolla á sextándu og hefði því getað endað daginn betur.

Halldór Jóhannsson úr Golfklúbbnum Keili er fimmti á einu höggi undir pari en Halldór lék best allra í dag eða á fjórum höggum undir pari í dag, fékk fimm fugla og aðeins einn skolla.

Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss er á parinu og deilir sjötta sætinu með Aroni Snæ Júlíussyni úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og það þrátt fyrir að hafa tapað fjórum höggum á síðustu þremur holunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×