Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Eiður Þór Árnason skrifar 7. ágúst 2026 08:00 Vilhjálmi þykir umræðan um loftslagsmál stundum hafa verið á villigötum. Stjórnarráðið „Mér hefur þótt það vanta í umræðu um loftslagsmál í hvað peningarnir fara og að það sé svona sannfæring hjá skattgreiðendum um að það sé verið að beina þeim í ábatasöm verkefni. Ég get bara fullyrt það að hjá Loftslags- og orkusjóði þá tókst það á árinu 2025.“ „
Við styrktum 7.200 bifreiðar, réðumst í stærsta jarðhitaleitarátak á öldinni, hjálpuðum garðyrkjubændum um allt land að gera gróðurhúsin sín skilvirkari með LED-væðingu og við settum milljarða í bætta orkunýtni hjá fyrirtækjum og fleiri verkefni. Allt þetta til samans sparaði hagkerfinu 23 milljónir olíulítra og 59 gígavattstundir af raforku.“ Þetta sagði Vilhjálmur Hilmarsson, formaður stjórnar Loftslags- og orkusjóðs, í Bítinu á Bylgjunni. Raforkusparnaðurinn vegna styrktra verkefna árið 2025 samsvari árlegri rafmagnsnotkun 15.000 heimila. „Ef við skoðum markaðsvirði þessa sparnaðar sem sjóðurinn keypti á árinu, þessar 23 milljónir olíulítra og 59 gígavattstundir, þá erum við að meta sem svo að þetta sé svona áttfalt á við kostnað sjóðsins. Í þessu felst ábatinn af aðgerðunum.“ Sjóðurinn skuldbatt sig til að styrkja verkefni fyrir 10,4 milljarða króna árið 2025. Langmest, eða 81 prósent, var vegna kaupa á bifreiðum og hjólum. Sjóðurinn styrkir meðal annars kaup einstaklinga á nýjum rafmagnsbílum og fyrirtækja á hópferða- og vörubifreiðum. Einnig er hægt að sækja um styrki fyrir ýmis önnur verkefni tengd orkuskiptum og auglýsir Loftslags- og orkusjóður nú styrki til uppbyggingar hleðslustöðva fyrir rafmagnsbíla við fjölbýlishús. Þurfa samt að skera niður Loftslags- og orkusjóður varð til árið 2024 með sameiningu tveggja sjóða og var 2025 fyrsta heila starfsár sjóðsins. Honum er ætlað að styrkja verkefni sem miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis á Íslandi og auka hlut innlendra endurnýjanlegra orkugjafa. Sjóðurinn styður einnig verkefni sem er ætlað að stuðla að orkuöryggi og samkeppnishæfni í orkumálum í samræmi við loftslagsmarkmið stjórnvalda. Vilhjálmur segir að það verði samdráttur í úthlutunum sjóðsins á þessu ári samanborið við árið í fyrra. Þá séu stjórnvöld búin að boða „töluverðan niðurskurð“ á næsta ári. „Þess vegna er bara enn meiri ástæða til að við séum að beina því í sem ábatasömustu verkefni og við erum svona að skoða til dæmis hvort það sé hægt að ná betra jafnvægi milli bifreiðastyrkja og að styrkja iðnað og svo framvegis.“ Vilhjálmur finnur fyrir ákveðinni togstreitu í umræðunni um loftslagsmál og segir að skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum um það hvernig fjármunum sé varið. „Ég hef fullan skilning á að fólk skuli spyrja sig spurninga. Það er algjört meginmarkmið hjá sjóðnum að það sé sem mestur ávinningur fyrir hverja styrkkrónu.“ Að hans mati hafi það tekist vel á síðasta ári. Styrkja landbúnað og stóriðju Um 120 milljónir voru settar í að styrkja LED-væðingu gróðurhúsa á síðasta ári þar sem grænmetisbændur settu upp LED-ljós í stað eldri orkufrekari lampa, að sögn Vilhjálms. Sjóðurinn hefur einnig beint sjónum sínum að stóriðju og öðrum landbúnaðargreinum. „Núna á árinu 2026 þá vorum við að auglýsa styrki til nýsköpunarlausna í iðnaði sem fellur undir ETS-kerfið, meðal annars í stóriðjunni. Þannig að við erum líka að hjálpa þessum stórnotendum að takast betur á við loftslagsvandann.“ Í mars úthlutaði Loftslags- og orkusjóður meðal annars styrkjum til kaupa á GPS-stýrðum áburðardreifurum, bættri tækni fyrir lífrænan áburð, dráttarvélum og sáningarvélum. Markmiðið með þessum aðgerðum er að gera áburðardreifingu bænda skilvirkari og draga um leið úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna áburðarnotkunar. Alltaf krafa um bætt lífsgæði „Það sem er náttúrulega endanlega markmiðið er að við séum að gera hagvöxtinn á Íslandi kannski grænni og að það séu meiri gæði í hagvextinum,” bætir Vilhjálmur við. „Mér hefur þótt umræðan kannski stundum á villigötum að því leyti að þú munt ekki ná sátt um loftslagsvandann ef þú ert að biðja hverja kynslóð um að einhvern veginn taka á sig meiri byrðar fyrir framtíðina og draga úr hagvexti. Það verður alltaf krafa um bætt eða aukin lífsgæði, það er bara þannig. Þess vegna skiptir rosalega miklu máli að við svona stillum hagkerfið þannig af að hagvöxturinn verði grænn, að hann verði hreinn og þarna sé minni olía og minna rafmagn.“
Loftslagsmál Bílar Vistvænir bílar Bítið Tengdar fréttir Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Áætlað er að verkefni sem styrkt voru af Loftslags- og orkusjóði árið 2025 muni spara 23 milljónir olíulítra og raforku sem nemur 59 gígavattsstundum á ársgrundvelli. 13. júlí 2026 23:35 Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Nýsköpunarverkefni Elkem á Grundartanga og Carbfix um að kanna möguleikann á að fanga og farga kolefni frá kísilverinu hlaut tæplega tvö hundruð milljón króna styrk úr Orku- og loftslagssjóði. Alls var á fjórða hundrað milljóna króna veitt í verkefni til að draga úr losun stóriðju. 7. maí 2026 11:05 Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Sjá meira
Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Áætlað er að verkefni sem styrkt voru af Loftslags- og orkusjóði árið 2025 muni spara 23 milljónir olíulítra og raforku sem nemur 59 gígavattsstundum á ársgrundvelli. 13. júlí 2026 23:35
Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Nýsköpunarverkefni Elkem á Grundartanga og Carbfix um að kanna möguleikann á að fanga og farga kolefni frá kísilverinu hlaut tæplega tvö hundruð milljón króna styrk úr Orku- og loftslagssjóði. Alls var á fjórða hundrað milljóna króna veitt í verkefni til að draga úr losun stóriðju. 7. maí 2026 11:05