Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 16:39 Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni átti frábæran fyrsta hring á Íslandsmótinu. @gsigolf Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er með forystuna í meistaraflokki kvenna eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli.
Elsa Maren lék fyrsta hringinn á 67 höggum eða fjórum undir pari og hún leiðir með þremur höggum eftir þennan fyrsta dag af fjórum. Elsa fékk átta fugla og fjóra skolla á hringnum, en sex fuglanna komu á síðustu sjö holunum sem er einn rosalegasti endir á hring sem sést hefur á Íslandsmóti kvenna. Elsa er 21 árs og hefur stundað nám við bandaríska háskóla, þar á meðal Western Carolina-háskólann. Í öðru sæti er ríkjandi Íslandsmeistari, Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili, en hún lék á einu höggi undir pari. Guðrún Brá var með sjö fugla en fékk líka þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla. Heimastúkan, Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er á tveimur höggum yfir pari eins og Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Jafnar í fimmta sæti á þremur höggum yfir pari eru síðan Una Karen Guðmundsdóttir úr Golfklúbbi Skagafjarðar, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Karen Lind Stefánsdóttir, báðar úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Íslandsmótið í golfi Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira