Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. ágúst 2026 06:29 Einn var fluttur með þyrlunni til Reykjavíkur. Heilbrigðisstofnun Suðurlands Tæplega 150 leituðu læknisaðstoðar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum yfir verslunarmannahelgina á meðan Þjóðhátíð í Eyjum stóð yfir. Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Yfir helgina leituðu alls 95 á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum og 52 í sjúkraskýlið á þeirra vegum. Í sjúkraskýlinu tókst að sinna langflestum en örfáir þurftu að fara áfram á heilsugæsluna yfir nóttina samkvæmt færslu HSU á Facebook. „Það er alltaf sérstök stemning sem fylgir því að vinna á Þjóðhátíð. Flestir eru í góðu skapi og allir leggja sig fram um að gera sitt besta. Við sem erum að vinna eru jafnframt mörg að undirbúa hátíðina með okkar fjölskyldum og mörg sinna einnig öðrum verkefnum fyrir ÍBV yfir helgina,“ er haft eftir Þórunni Pálsdóttur, hjúkrunarfræðingi í Vestmannaeyjum, sem var ein þeirra sem héldu utan um starfsemina um helgina. „Þegar helgin er að baki eru því flestir orðnir þreyttir, en jafnframt stoltir af góðu samstarfi og vel unnu verki.“ Fundað var á hverjum degi með fulltrúum heilsugæslu, sjúkradeildar, lögreglu, sjúkraflutninga, ÍBV, gæslu og sálgæsluteymis þar sem farið var yfir stöðu mála. Einnig var farið yfir það sem mætti bæta til að tryggja sem best öryggi og þjónustu. Að minnsta kosti einu sinni þurfti að kalla út þyrlusveit Landhelgisgæslunnar yfir helgina. Einn maður var sóttur sem hafði slasast alvarlega á fæti eftir fall í eyjunni og hann fluttur á Landspítalann í Fossvogi.
Vestmannaeyjar Þjóðhátíð í Eyjum Heilbrigðisstofnun Suðurlands Verslunarmannahelgin Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira