Gæti skákað föður sínum: „Þetta verður spennandi“ Aron Guðmundsson skrifar 6. ágúst 2026 08:30 Guðrún Brá Björgvinsdóttir stefnir á að verða Íslandsmeistari í golfi í fimmta sinn. vísir/lýður Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur titilvörn sína á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli í dag. Hún er einum Íslandsmeistaratitli frá því að slá titlafjölda föður síns.
Íslandsmeistarinn er vel stemmd fyrir mótinu og segir það alltaf jafn gaman að mæta til leiks á Íslandsmótinu. Guðrún Brá þekkir það vel að standa uppi sem Íslandsmeistari. Það hefur hún gert fjórum sinnum til þessa eða jafn oft og faðir hennar Björgvin Sigurbergsson gerði á sínum ferli. Það kitlar Guðrúnu að sækja fleiri Íslandsmeistaratitla en faðir hennar gerði. „En það er ekki aðal drifkrafturinn þegar kemur að þessu móti. Auðvitað hefur þetta verið mikið í fjölmiðlum. Við nýtum þetta alveg sem smá banter.“ Mætir til leiks full af sjálfstrausti Eitt er víst og það er að Guðrún Brá er til alls líkleg á móti helgarinnar. Hún hefur í aðdraganda mótsins unnið bæði Hvaleyrarbikarinn sem og Íslandsmótið í holukeppni. „Þetta hefur verið flott sumar. Ég hef verið svolítið mikið hérna heima, er því ekki að koma inn í þetta mót beint að utan. Það hjálpar alltaf smá. Þetta verður spennandi. Hún býst við hörku samkeppni. „Ég held það verði mikil spenna og frábært að sjá hvað það eru margir kylfingar skráðir. Vonandi verður þetta mjög spennandi. Það er búið að lengja völlinn aðeins. Það gerir þetta meira krefjandi. Vonandi verður veðrið bara gott við okkur.“ Þolinmæði er lykillinn Með reynsluna á bakinu veit Guðrún Brá hvað til þarf til þess að verða Íslandsmeistari hún nálgast þetta Íslandsmót eins og hún nálgast hvert annað mót. „Þetta er langt mót, fjórir keppnisdagar og það getur margt gerst. Ég held að þetta muni snúast um að vera þolinmóð og gera sem fæst mistök.“ Guðrún Brá hefur titilvörn sína á Íslandsmótinu í golfi í dag og á teig klukkan 09:23. Fylgst verður náið með framvindu mótsins hér á Vísi.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira