Á heimavelli og freista þess að ná montrétti fjölskyldunnar Aron Guðmundsson skrifar 6. ágúst 2026 07:32 Systkinin Dagbjartur og Perla Sól Sigurbrandsbörn keppa bæði á Íslandsmótinu í golfi sem hefst í dag. vísir/lýður Íslandsmótið í golfi hefst á Korpúlfsstaðavelli í dag. Þar eru systkinin Dagbjartur Sigurbrandsson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir á heimavelli og stefna á að bæta við Íslandsmeistaratitlum í safnið og eigna sér montréttinn í fjölskyldunni.
Dagbjartur hefur titil að verja á mótinu á meðan að að Perla Sól stefnir á að reyna vinna sinn annan Íslandsmeistaratitil, sá eini til þessa kom árið 2022. Heimili fjölskyldunnar er steinsnar frá Korpúlfsstaðavelli Er það meiri pressa sem fylgir því að spila á heimavelli? „Nei nei ég myndi ekki segja það,“ svarar Dagbjartur. „Það er meiri umfjöllun og maður vann í fyrra en maður tekur þessu með jákvæðum huga og þetta verður skemmtileg áskorun.“ Perla Sól tekur undir það: „Mér finnst þetta bara geggjað. Ég er ótrúlega spennt. Völlurinn er í geggjuðu standi. Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu.“ Lífið við sjöundu braut Dagbjartur og Perla Sól hafa alist upp við hlið Korpúlfsstaðavallarins, þekkja hann inn og út. „Við erum mikið hérna,“ segir Perla Sól. „Förum oft bara út á kvöldin og spilum þann hluta vallarins sem nefnist sjórinn.“ Það fylgja því ýmsir kostir að búa við Korpúlfsstaðavöllinn. Golf æðið sem hefur runnið á þjóðina hefur ekki farið fram hjá neinum. Ásóknin í rástíma er gífurleg og er Korpúlfsstaðavöllur þar engin undantekning. Þá er gott að geta labbað yfir á völlinn. „Það er alltaf svo mikið af fólki að spila. Maður þarf aldrei að pæla í bílastæðamálunum,“ segir Dagbjartur. Það er öllu til tjaldað á Íslandsmótinu og umgjörðin eins og best verður á kosið. Fólk hvatt til þess að mæta á völlinn og fylgjast með mörgum af okkar fremstu kylfingum. Rígur á góðu nótunum Perla. Dagbjartur vinnur sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í fyrra. Þú þekkir það vel að vinna Íslandsmeistaratitil. Systkinin bæði komin með Íslandsmeistaratitla en þið hljótið að ætla bæta í. „Já. Það er smá keppni á milli okkar.“ Er innbyrðis rígur? „Já að sjálfsögðu. Nei.,“ segir Perla Sól kímin. „Nei nei ekkert einhver rígur en bara gaman. Alltaf jafn gaman að styðja hvort annað,“ bætir Dagbjartur svo við. Eitt högg í einu Leiðin að Íslandsmeistaratitli er ströng. Það þarf allt að ganga upp. „Þetta er alltaf bara það sama. Eitt högg í einu,“ segir Dagbjartur aðspurður hvað þurfi að ganga upp á leiðinni að öðrum Íslandsmeistaratitli. „Gera sitt besta. Maður þarf að fókusera á hlutina sem maður getur stjórnað. Rútínu, gott leikskipulag og vera jákvæður yfir þessa fjóra daga. Svo kemur bara í ljós hvernig niðurstaðan verður.“ Perla Sól tekur í sama streng. „Vera þolinmóð. Það er spáð miklum vindi og rigningu. Þolinmóð og hafa gaman að þessu. Það skiptir miklu máli.“ Dagbjartur og Perla Sól hefja leik á Íslandsmótinu í golfi í dag. Dagbjartur á teig klukkan 12:19 en Perla Sól klukkan 09.12. Fylgst verður náið með Íslandsmótinu í golfi á Vísi næstu daga.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira