Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Freyja Þórisdóttir skrifar 5. ágúst 2026 07:43 Auðjöfurinn Elon Musk er maðurinn á bakvið SpaceX en eldflauginni var skotið út í geim þann 24. janúar í fyrra, árið 2025. AP/Getty Bútur úr SpaceX-eldflaug sem er á stærð við fimm hæða hús og vegur í það minnsta fjögur tonn rakst á tunglið á sjöunda tímanum. Áreksturinn er ekki talinn hættulegur lífi á jörðinni og var hann ekki sýnilegur frá jörðu með berum augum. Búturinn er úr Falcon 9-eldflaug sem var skotið á loft frá Flórída með tvö tunglendingaför út í geim í janúar í fyrra.
Frá þessu er greint í fjölda erlendra miðla en samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) hafði eldflaugin þotið um á sporbaut á um 8.700 kílómetrum á klukkustund þegar ljóst var að búturinn myndi rekast á tunglið. Áreksturinn er, samkvæmt bandarísku geimferðastofnuninni NASA, áætlaður um klukkan 06:35 á íslenskum tíma, er fram kemur í lifandi vakt BBC. Hann var sem fyrr segir ekki sýnilegur frá jörðu nema fyrir þá sem hafa aðgang að fyrsta flokks stjörnusjónauka. Þau gætu hafa séð blossa frá yfirborði tunglsins. Verkefni eldflaugarinnar Falcon 9 var að skjóta efra þrepi sínu, sem skall svo á tunglinu, af nægilegum krafti til að senda bæði tunglendingarförin út af sporbaugi jarðar og á braut í átt að tunglinu. Sá áfangi tókst. Sáu í hvað stefndi Í stað þess að skjótast á braut frá tunglinu var þrepið skilið eftir á sveigðri braut sem sveiflaði því í átt að tunglinu og aftur til baka. Í umfjöllun BBC er því lýst hvernig aðdráttarafl jarðar, tungls og sólar, sem og jafnvel daufur þrýstingur frá sólarljósinu sjálfu, breyttu smám saman braut þess. Stjörnufræðingar sem hafi fylgst með þrepinu hafi loks áttað sig á því að að þessar litlu hreyfingar hefðu sett hann á stefnu í átt að tunglinu, þar sem búturinn jók hraðann með hverjum deginum og stefndi á gríðarlegan árekstur. Vísindamenn NASA ætli að safna gögnum frá tunglinu í kjölfar atburðarins og betrumbæta aðferðir til að fylgjast með hlutum í geimnum. „Þetta er eitthvað risastórt sem skellur á tunglinu. Það er ekki nærri því að vera hættulegt, við getum bara fylgst með á sjónarspilinu,“ er haft eftir dr. Matt Bothwell, stjörnufræðingi við Cambridge-háskóla, í umfjöllun BBC.
Geimurinn Bandaríkin Tunglið Vísindi Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira