Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 15:41 Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir unnu Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og ætla bæði að verja hann í ár. GSÍMyndir Íslandsmótið í golfi verður haldið á Korpúlfsstaðavelli í vikunni en keppni hefst á fimmtudaginn kemur. Nú vitum við allt um keppendalistann og þar er nóg af fólki sem þekkir það að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
Alls eru tíu Íslandsmeistarar á meðal þeirra kylfinga sem taka þátt í mótinu að þessu sinni og þar á meðal eru þau Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir sem unnu titilinn í fyrra og ætla að verja hann í ár. Sex Íslandsmeistarar eru á meðal þeirra 92 kylfinga sem taka þátt í karlaflokki en fjórir Íslandsmeistarar eru á meðal þeirra 40 kylfinga sem taka þátt í kvennaflokki. Ríkjandi Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir vann sinn fjórða Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir umspil við Huldu Clöru Gestsdóttur. Áður hafði hún sigrað þrjú ár í röð, frá 2018 til 2020. Guðrún Brá hefur þegar unnið Íslandsmeistaratitil á árinu, en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni á Urriðavelli í júní. Þá stóð hún einnig uppi sem sigurvegari í Hvaleyrarbikarnum í júlí og hefur því unnið bæði mót sín hér á landi í sumar. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf) Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er forgjafarlægsti kylfingurinn á keppendalistanum og er meðal þeirra kvenna sem hafa orðið Íslandsmeistari en Ragnhildur varð Íslandsmeistari árið 2023 og hefur margoft verið í baráttu um titilinn. Auk Guðrúnar Brár og Ragnhildar eru fyrrum Íslandsmeistarar þær Perla Sól Sigurbrandsdóttir, sem varð Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum árið 2022, og Þórdís Geirsdóttir úr Keili, sem varð Íslandsmeistari árið 1987. Ríkjandi Íslandsmeistari karla, Dagbjartur Sigurbrandsson, mætir í titilvörn á heimavelli og hann er líka forgjafarlægstur af öllum kylfingum. Dagbjartur vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir mikla spennu á lokahringnum. Hann lék hringina fjóra á fimm höggum undir pari og varð einu höggi á undan Axel Bóassyni. Axel Bóasson hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari eða árin 2011, 2017 og 2018. Aron Snær Júlíusson hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2021 og 2024. Í síðari sigrinum setti hann nýtt mótsmet þegar hann lék Hólmsvöll á 14 höggum undir pari. Hann varð einnig jafn í þriðja sæti á Íslandsmótinu í fyrra. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf) Aðrir sem keppa í ár og hafa orðið Íslandsmeistarar eru Kristján Þór Einarsson (2008 og 2022), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (2019) og Logi Sigurðsson (2023). Keppendur í karlaflokki koma frá tólf golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, eða 23, sem fá tækifæri til að leika um Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á 17 keppendur, Keilir tólf og Golfklúbbur Akureyrar tíu. Golfklúbbur Reykjavíkur á líka flesta keppendur í kvennaflokki, alls tíu. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á níu kylfinga, en Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Golfklúbburinn Keilir eiga átta hvor. Alls eiga tólf golfklúbbar kylfinga í kvennaflokki mótsins.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Íslenski boltinn Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Fótbolti Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Handbolti Fleiri fréttir Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ Sjá meira