„Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. júlí 2026 17:12 Jared Leto er borinn þungum sökum í nýrri heimildarmynd frá BBC. EPA Leikarinn Jared Leto hafnar ásökunum í sinn garð um refsiverða háttsemi og segist aldrei hafa brotið kynferðislega á neinum í lífi sínu. Fjórar konur stigu nýverið fram í heimildarmynd og sökuðu hann um kynferðislegt ofbeldi og hótanir.
Heimildarmyndin Jared Leto: Hollywood's Dark Secret var frumsýnd á BBC í morgun. Þar er rætt við tíu konur sem allar eiga það sameiginlegt að hafa komist í kynni við Leto á árunum 2002 til 2016 og saka hann um ýmist óviðeigandi eða refsiverða hegðun. Leto er meðal annars sakaður um að hafa brotið kynferðislega á sautján ára stúlku inni á mótelbaðherbergi, hótað nítján ára konu á hótelherbergi og sofið hjá sautján ára stúlku þegar hann var 34 ára. Aðrar konur lýsa því að hafa fengið undarleg og kynferðisleg símtöl frá Leto þegar þær voru yngri. Einnig var rætt við fólk sem starfaði fyrir hljómsveit leikarans, Thirty Seconds to Mars, sem lýsa því hvernig hann fékk þau til að „útvega“ sér ungar konur til að koma baksviðs eftir tónleika. Leto svaraði ekki fyrirspurnum BBC um ásakanirnar meðan á framleiðslu heimildarmyndarinnar stóð eða eftir að hún kom út. Hann sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu síðdegis í dag eftir að fjallað var um ásakanirnar í fjölmiðlum. „Ég hef aldrei brotið kynferðisleg á neinum á ævi minni. Þessar fullyrðingar eru fullkomlega og afdráttarlaust ósannar,“ sagði Leto í yfirlýsingunni. Ásakanirnar eru ekki þær fyrstu sem eru bornar á hendur Leto sem er þekktastur fyrir leik sinn í Dallas Buyers Club (2013), Morbius (2022) og Masters of the Universe (2026). Fjölmiðillinn Air Mail greindi í fyrra frá ásökunum níu kvenna í hans garð um óviðeigandi hegðun og sama ár greindi plötusnúðurinn Allie Teilz frá því að leikarinn hefði brotið gegn sér þegar hún var sautján ára.
Kynferðisofbeldi Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira