„Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Samúel Karl Ólason skrifar 29. júlí 2026 13:08 Donald Trump er ekki sáttur við ráðamenn í Íran vegna árása þeirra á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt. AP/Alex Brandon Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad.
Í viðtali við Fox News í dag sagði Trump að von væri á frekari árásum gegn Íran. „Við ætlum að fokking lúskra á þeim.“ Við það bætti Trump svo að næstu árásir gegn Íran yrðu harðar og líkti þeim við barsmíðar. Hann hélt því í senn fram að viðræður milli ríkjanna myndu halda áfram. Trey Yingst, blaðamaður Fox, fór í dag yfir viðtal sitt við Trump í morgun. "We're going to beat the fuc*ing sh*t out of them," President Trump told Fox News after Iran launched a surprise attack against U.S. forces. "We'll be hitting them hard."The President says U.S. strikes overnight against Iran-backed militias in Iraq were coordinated with the… pic.twitter.com/AeLbEGFCFi— Trey Yingst (@TreyYingst) July 29, 2026 Bandaríkjamenn hættu árásum á Íran um helgina, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum sem hófust eftir að vopnahlé gaf eftir. Í aðdraganda þeirrar ákvarðanar lýsti Trump því yfir að hann væri að íhuga að auka umfang árása gegn Íran talsvert. Á föstudaginn fundaði hann þó með ráðgjöfum sínum og herforingjum en margir á þeim fundi eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum af stöðunni og dregið í efa að frekari árásir myndu skila tilætluðum árangri. Þá töluðu herforingjar um áhyggjur af því hve mikið væri búið að ganga á birgðir Bandaríkjamanna af flugskeytum í loftvarnarkerfi, vegna skotflauga og drónaárása Írana á nágranna ríki sín og bandaríska hermenn á svæðinu. Sjá einnig: Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Bandaríska hugveitan Center for strategic & international studies birti í vikunni greiningu á birgðastöðu Bandaríkjamanna á flugskeytum í Patriot- og THAAD-loftvarnarkerfi. Áður en átökin hófust áætla sérfræðingar hugveitunnar að Bandaríkjamenn hafi átt 2.330 flugskeyti í Patriot og 452 í THAAD. Nú er talið að fjöldinn sé 759-827 flugskeyti í Patriot og 234-278 í THAAD. Skyndiárásir í nótt og í morgun Nokkurs konar friður hefur því ríkt síðan um helgina en það breyttist í nótt. Þá skutu Íranir skotflaugum að bandarískum hermönnum í Jórdaníu. Ráðamenn í Tehran sögðu einnig að skotið hefði verið á þrjú skip ár Hormússundi í morgun. At 5:45 p.m. ET today, Islamic Revolutionary Guard Corps forces launched multiple ballistic missiles from Iran in an attempted surprise attack on U.S. forces based in the Middle East. All Iranian missiles were successfully intercepted. U.S. forces remain vigilant and at a high…— U.S. Central Command (@CENTCOM) July 28, 2026 Einnig bárust fregnir af því í morgun að klerkastjórnin hefði hafnað tillögu frá yfirvöldum í Óman um það hvernig hægt væri að halda utan um stjórn Hormússunds í framtíðinni. Sú tillaga var studd af öðrum ríkjum á svæðinu og snerist í grófum dráttum um að ríkjum á svæðinu, orkufyrirtækjum og eigendum flutningaskipa yrði valfrjálst að greiða í sérstaka sjóði sem nota ætti í að stýra og styðja umferð skipa um Hormússund. Wall Street Journal segir að þeirri tillögu hafi verið hafnað vegna þess að klerskastjórnini fannst hún óraunhæf. Þá krafðist klerksastjórnin þess að hafa meiri stjórn á sundinu en yfirvöld í Óman, sem liggur við sunnanvert sundið.
Bandaríkin Donald Trump Hernaður Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Sjá meira