Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Eiður Þór Árnason skrifar 28. júlí 2026 08:55 Talkúm var lengi notað í barnapúður stórfyrirtækisins en vörum þeirra var síðar breytt. EPA/ANDY RAIN Johnson & Johnson áætlar að fyrirtækið muni greiða um 5,5 milljarða bandaríkjadala til leysa úr tugþúsundum málsókna þar sem því er haldið fram að barnapúður og aðrar talkúmvörur þess hafi valdið krabbameini í eggjastokkum.
Samkomulagið gæti bundið enda á áratugalöng málaferli í Bandaríkjunum en upphæðin jafngildir um 693 milljörðum íslenskra króna. Johnson & Johnson tilkynnti í gær að samkomulagið næði til um 76.000 krafna sem samsvari nær öllum útistandandi fjárkröfum á hendur fyrirtækinu vegna talkúm (e. talc). The Guardian greinir frá þessu. Bandaríska fyrirtækið hefur sömuleiðis staðið í málaferlum þar sem því var haldið fram að talkúmið sem það notaði innihéldi asbest og ylli fleiðrukrabbameini. Þeim málum hafði áður flestum verið lokið með sátt. Lögmannsstofur stefnenda féllust á samkomulagið í gær og sögðu það góða niðurstöðu eftir tíu ára baráttu fyrir dómstólum. Í kjölfarið þurfa 95 prósent þeirra sem hafa höfðað mál vegna krabbameins í eggjastokkum fyrir ríkis- eða alríkisdómstólum í Bandaríkjunum að samþykkja samkomulagið. Fullyrða samt að kröfurnar séu tilhæfulausar Erik Haas hjá lögfræðisviði Johnson & Johnson sagði kröfurnar „tilhæfulausar“ og að fyrirtækið væri reiðubúið að ljúka málinu með sátt til að binda enda á það. „Þótt við séum fullviss um að fyrirtækið hefði að lokum haft betur í frekari málaferlum, eins og það hefur gert í langflestum málum sem hafa verið tekin fyrir til þessa, gerir þessi niðurstaða fyrirtækinu kleift að leggja þetta mál að baki og halda áfram að einbeita sér að því að þróa lyf og tæki sem bjarga mannslífum,“ sagði Haas. Gætu þurft að borga meira Johnson & Johnson gerir ráð fyrir að greiða þrjá milljarða bandaríkjadala á næsta ári og svo frekari upphæðir árið 2028. Heildarupphæðin gæti orðið hærri en 5,5 milljarðar bandaríkjadala en það veltur á því hversu margir stefnendur taka þátt í sáttinni, að því er fram kemur í frétt The Guardian. Lögmaðurinn Chris Seeger sem er í forsvari fyrir um 2.500 skjólstæðinga með talkúmkröfur og tók þátt í því að ná niðurstöðunni sagði að Johnson & Johnson gæti á endanum greitt sjö milljarða bandaríkjadala eða meira. Samkomulagið setur ekki þak á heildargreiðslu Johnson & Johnson, að sögn Seeger. „Við fengum sanngjarnt samkomulag og skjólstæðingar okkar verða ánægðir með það.“ Johnson & Johnson búið að vinna mál fyrir dómi Johnson & Johnson náði samkomulaginu eftir röð sigra fyrir dómstólum, þar á meðal sigra í einstökum málaferlum, árangursríkar tilraunir til að víkja lögmönnum stefnenda frá málum og dómsúrskurði gegn sérfræðingum sem stefnendur höfðu notað til að sanna mál sitt fyrir dómi. Fyrirtækið vann mikilvægan sigur fyrir dómstólum í langvinnri deilu í síðustu viku þegar alríkisdómari dró í efa getu einstakra stefnenda til að sanna að talkúm hefði valdið krabbameini þeirra í eggjastokkum. Hættu að selja barnapúður með talkúmi Johnson & Johnson hefur lengi neitað því að talkúmvörur þess hafi valdið krabbameini og sagt að talkúm væri öruggt og innihéldi ekki asbest. Fyrirtækið hætti að selja barnapúður með talkúmi í Bandaríkjunum árið 2020 og skipti yfir í vöru unna úr maíssterkju. Johnson & Johnson hefur áður náð misjöfnum árangri í talkúmréttarhöldum og þurfti til að mynda að sætta sig við margra milljarða dala dóm sem féll í vil 22 kvenna sem sögðu barnapúður hafa valdið krabbameini þeirra í eggjastokkum. Fyrirtækið vann sum mál að fullu og fékk aðra dóma mildaða við áfrýjun. Samkomulagið sem tilkynnt var í gær gildir aðeins um útistandandi kröfur og hefur ekki áhrif á framtíðarmálsóknir, að sögn The Guardian.
Bandaríkin Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Minnst fjörutíu slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Sjá meira