Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Valur Páll Eiríksson skrifar 28. júlí 2026 07:00 Infantino hefur verið kallaður fyrir þingnefnd vegna meintra óeðlilegra tengsla við Donald Trump. Joe Prior/Visionhaus/Getty Images Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur verið boðaður í skýrslutöku dómsnefndar Bandaríkjaþings vegna sambands hans við ríkisstjórn Donalds Trump, forseta.
Samband Infantino og Trumps hefur verið töluvert til umræðu og hefur sætt gagnrýni. Infantino stofnaði sérstök friðarverðlaun FIFA sem hann afhenti Trump í fyrra, hann stofnaði nýjar skrifstofur FIFA í Trump-turni í New York og breytti áformum um drátt í riðlakeppni HM fyrir tilstilli Trump, er hann var færður með skömmum fyrirvara frá Las Vegas í John F. Kennedy Center í Washington, sem Trump og pólitískir bandamenn hans höfðu nýtekið yfir. Háværustu gagnrýnisraddirnar hljómuðu þegar Trump greindi frá því að hann hafi hringt í Infantino til að fá leikbanni Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, hnekkt á miðju heimsmeistaramóti. FIFA segir þá ákvörðun hafa verið tekna af sjálfstæðri dómsnefnd innan sambandsins en fjölmiðlar hafa greint frá því að formaður þeirra nefndar hafi einn tekið ákvörðunina, án þess að ráðfæra sig eða funda með neinum annarra nefndarmanna. Málið hefur verið tilkynnt til Alþjóðaólympíunefndarinnar. Jamie Raskin, þingmaður Demókrataflokksins, sem situr í dómsnefnd Bandaríkjaþings (House Judiciary Committee) hefur þrýst á FIFA að afhenda nefndinni öll skjöl er viðkoma samskiptum við ríkisstjórn Trumps. Þar með talið allar gjafir og greiðslur sem hafa farið þar á milli. Hann hefur einnig beðið um upplýsingar um heimsóknir í skrifstofur FIFA í New York og Miami sem og öll samskipti gegnum hvaða miðla sem er, þar á meðal hverfandi skilaboð í gegnum Telegram, Signal, WhatsApp, X eða Truth Social. Enn fremur er Infantino beðinn um að koma í viðtal til nefndarinnar með það fyrir augum að komast að því hvort samband Infantino og Trump hafi farið yfir lagaleg mörk. Ólíklegt þykir að Raskin hafi völd til að fá Infantino til að mæta fyrir nefndina þar sem Demókratar eru í minnihluta á bandaríska þinginu. Það kann að breytast ef Demókratar skyldu vinna kosningasigur í kosningum í nóvember næstkomandi. Nái Demókratar meirihluta í kosningunum gæti Raskin orðið formaður nefndarinnar. Því fylgir réttur til að stefna mönnum til að mæta fyrir nefndina, völd sem hann gæti beitt gegn Infantino. Samkvæmt frétt The Athletic gætu spurningar dagsins í dag orðið að formlegum rannsóknum og stefnum morgundagsins, verði breytingar í kosningunum.
HM 2026 í fótbolta Bandaríkin FIFA Donald Trump Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira