Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. júlí 2026 12:03 Siggi Stormur segir spárnar læstar fyrir helgina. Vísir/Vilhelm Líklegast er að sólin muni leika við landsmenn á sunnan og vestanverðu landinu um Verslunarmannahelgina á meðan rigning er í kortunum í öðrum landshlutum. Þetta segir veðurfræðingur sem telur ólíklegt að spár fyrir helgina muni breytast mikið á næstu dögum.
Stærsta ferðahelgi ársins er framundan, sjálf Verslunarmannahelgin en líkt og á ári hverju fara fram á annan tug útihátíða um land allt. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur sem margir þekkja sem Sigga Storm segir veðurspár fyrir landshluta um helgina vera farnar að skýrast, bandarískar og evrópskar spár séu keimlíkar, útlit sé fyrir lægðagang norðaustur af landinu með norðanátt. „Þær eru lygilega líkar, þessar spár, það er eiginlega sama hvaða spá er skoðuð, þetta bendir allt til þess að við séum í læstri stöðu, það er að segja með lægðagang við norðausturhornið og norðaustur af landinu með norðanátt, sem er komin til að vera verslunarmannahelgina á enda. Það má reikna með að það verði einhver vindur í þessu, það verður ekki alveg logn,“ segir Siggi. „En á hinn bóginn þegar kemur að úrkomu að þá erum við að tala um að Norður- og Norðausturlandið og Austfirðirnir og raunar Austurlandið verði í rigningu af og til um verslunarmannahelgina. Það verður rigning með köflum, það er ekkert svakalega mikil úrkoma að reiknast í þessu, þannig að ef allt fer á besta veg þá gæti þetta nú farið betur en spár gera ráð fyrir.“ Á meðan verði sólríkt veður á sunnan- og vestanverðu landinu um helgina, líkt og undanfarna daga. „Það er komið til að vera um sunnan- og vestanvert landið og þá má reikna með að það verði svona tiltölulega hægur vindur af norðri, það verður úrkomulítið og úrkomulaust helgina á enda. Og það má reikna með að það verði skýjað með köflum, bjart með köflum eða léttskýjað, þannig þetta getur varla verið hagstæðara fyrir þá sem ætla sér að ferðast um Suðurland og eitthvað norður með Vesturlandinu.“ Hitinn fyrir norðan verði einhvers staðar á bilinu sex til ellefu, tólf stig. Á suðurhelmingi landsins geti slegið upp í sautján, til tuttugu stig þegar best lætur. Þannig það er útlit fyrir það að Suðurland og Vesturland fái helst sól um helgina á meðan það lítur út fyrir rigningu víðast hvar annars staðar? „Já, það má segja það. Norðanverðir Vestfirðir fá rigningu líka þannig það er engu logið í því. Þannig að Norður- og Austurland eru rigningarsvæðin okkar þessa helgina.“ Eru líkur á því að þessi spá taki einhverjum breytingum í vikunni? „Ég á ekki von á því það verði neinar afgerandi breytingar. Þær eru ólíkar spárnar að því leytinu til að hún er sýnu hægari, bandaríska spáin með vindinn, þar kemur fram að það verði hægari vindur. En í öllum megindráttum þá sýnist mér að það verði ekki breytingar á þessu. En vel að merkja, það er smá lægðagangur suður af landinu og það gæti dropað eitthvað allra syðst, en það eru verulega litlar líkur á því, en það er kannski rétt að búast við síðdegisskúrum kannski svona rétt til að safna vatni og gróðurinn fái sitt.“
Veður Verslunarmannahelgin Ferðalög Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira