Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Jón Þór Stefánsson skrifar 27. júlí 2026 08:00 Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í máli mannsins 6. júlí, og úrskurðaði hann svo í gæsluvarðhald 7. júlí. Vísir/Vilhelm Karlmaður situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um stórfellda líkamsárás sem beindist gegn sambýliskonu hans. Árásina mun hann hafa framið nóttina eftir að hann var hann dæmdur í eins árs fangelsi fyrir ofbeldi í garð þessarar sömu konu.
Núverandi gæsluvarðhaldsúrskurður er í gildi til byrjun næsta mánuðar, og var kveðinn upp í byrjun þessa mánaðar. Aðfaranótt 7. júlí síðastliðins var lögreglu tilkynnt um öskur og læti frá heimili fólksins. Á vettvangi greindi konan frá því að maðurinn hefði beitt hana ofbeldi, og var hún með sjáanlega áverka, meðal annars á hálsi, líkt og hún hafi verið tekin hálstaki. Mínútur en ekki sekúndur Hún greindi lögreglumönnunum frá því að maðurinn hafi verið reiður umrætt kvöld og ausið yfir hana fúkyrðum og hótunum. Því hafi hún læst sig inni í svefnherbergi. Hann hafi hins vegar sparkað upp hurðinni og komið inn til hennar. Þá hafi hann sest klofvega yfir hana og tekið hana kyrkingartaki þannig að hún missti andann, og taldi að hún hafi misst meðvitund um tíma. Þetta hafa varað í einhverjar mínútur en ekki sekúndur. Konan lýsti því að hún hafi þurft að berjast fyrir lífi sínu. Henni hafi alltaf tekist að ná andanum inn á milli, en misst hann jafnóðum. Hún hafi barist um og komist undan, sem endaði með því að féllu bæði úr rúminu og gólfið. Þá hafi hann aftur lagst á hana, tekið hana kyrkingartaki á ný, svo kýlt í andlitið og rifið í hár hennar. Maðurinn neitar sök. Alvarlegasta atvikið til þessa Líkt og áður segir átti þetta atvik sér stað nóttina 7. júlí, en daginn áður, 6. júlí, hlaut hann dóm í Héraðsdómi Vesturlands fyrir ofbeldi gegn konunni. Þá var hann dæmdur í eins árs fangelsi. Brotin sem hann var dæmdur fyrir voru framin frá því í nóvember í fyrra þangað til í mars á þessu ári. Sjá nánar: Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni Dómurinn varðaði þrjú atvik, þar sem hann ýmist sló og sparkaði í hana, tók hana hálstaki, og dró hana eftir jörðinni. Og beitti öðru líkamlegu ofbeldi. Þrátt fyrir það er haft eftir konunni í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að um sé að ræða alvarlegasta atvikið til þessa. Hún hafi raunverulega óttast um líf sitt.
Dómsmál Heimilisofbeldi Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Skilorð fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sína Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Sjá meira