Körfubolti

Lebron fer til Filadelfíu

Andri Broddason skrifar
LeBron James mun leika með Philadelphia 76ers á næsta tímabili.
LeBron James mun leika með Philadelphia 76ers á næsta tímabili. Luke Hales/Getty Images

LeBron James mun skrifa undir tveggja ára samning við Philadelphia 76ers. 

Þetta staðfestir Rich Paul, umboðsmaður James, í samtali við Shams Charania hjá ESPN

Þetta er fjórða lið sem LeBron James mun spila fyrir í NBA deildinni en hann hefur spilað fyrir Los Angeles Lakers síðan 2019. Hann hefur fjórum sinnum á ferlinu verið NBA-meistari og náði því síðast árið 2020 með LA Lakers.

James skrifaði ekki undir nýjan samning hjá Los Angeles Lakers og hafa verið miklar vangaveltur hvert Lebron James myndi fara en Fíladelfía varð fyrir valinu. Í vikunni birti fyrrverandi lið LeBron James, Miami Heat, óvart tikynningu um að félagið ætlaði að kynna leikmanninn aftur til leiks. Nú er ljóst að ekkert verður úr því.

LeBron James er 41 árs gamall og því farið að síga á seinni hluta ferilsins hjá honum. Hann hefur verið valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar fjórum sinnum auk þess sem hann hefur verið valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaeinvígisins og gerði það nú síðast árið 2020.

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×